Hross í haga með gras í maga og rafmagnsgirðing allt í kring (1983-87)

engin mynd tiltækHljómsveit frá Egilsstöðum fær þann heiður að bera eitt frumlegasta nafn fyrr og síðar en það var Hross í haga með gras í maga og rafmagnsgirðing allt í kring, í daglegu tali var sveitin þó iðulega bara nefnd Hross í haga.

Heimildir eru örlítið misvísandi um starfstíma sveitarinnar, hún er bæði sögð hafa starfað 1983-85 og 1983-87 en á fyrra tímabilinu mun hún þrisvar sinnum hafa tekið þátt í hljómsveitakeppninni í Atlavík um verslunarmannahelgina.

Hross í haga spilaði einungis frumsamda tónlist en máttarstólpar hennar voru Elvar Vignisson, Rögnvaldur Jónsson og Ármann Einarsson. Þremenningarnir mynduðu kjarnann í henni en aðrir munu hafa komið og farið. Allar upplýsingar þ.a.l. eru vel þegnar.