Önnur sjónarmið

Önnur sjónarmið
(Lag / texti: Hilmar Oddsson)

Eitt sinn skaut hinn ofur litli Amor
ör með segulstál
sem feyktist burt og villtist út í buskann
en laust um sumarmál
lenti hún í minni sál.

Ég var bara líf sem vildi lifa,
langan heitan dag.
Ég var bara víf sem vildi syngja
vorsins dægurlag.
Og hugsa ekki um sólarlag.

Ástin heimtar löngum langa bið,
leikur með þig til og frá.
Stelur kossi, staldrar við,
stutt og gengur síðan hjá.

Senn er liðin þessi bið,
lokast leiðin fram á við
og hverfa önnur sjónarmið,
mun ég samt sem áður elska þig.

Ég var bara líf sem vildir lifa
og söng til þín mitt ljóð.
Lagið mitt var vorsins dægurfluga
og fuðraði upp í kvöldsins glóð.

Ástin heimtar löngum langa bið,
leikur með þig til og frá.
Stelur kossi, staldrar við,
stutt og gengur síðan hjá.

Þá er liðin þessi bið
og lokuð leiðin fram á við
og horfin önnur sjónarmið.
Ég samt sem áður elska þig.
Hverfa önnur sjónarmið.
Ég samt sem áður elska þig.

[m.a. á plötunni Eins og skepnan deyr – úr kvikmynd]