Afmælisbörn 26. ágúst 2017

Ingi T. Lárusson

Í dag eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á lista Glatkistunnar:

Daníel Ágúst Haraldsson söngvari er fjörutíu og átta ára gamall í dag. Hann vakti fyrst athygli á menntaskólaárum sínum með hljómsveitinni Nýdanskri sem hann hefur starfað með, reyndar með hléum, allt til þessa dags. Áður hafði hann verið í hljómsveitinni Chorus. Daníel Ágúst hefur einnig verið í fremstu víglínu í sveitum eins og Gus gus og Esju sem eru af allt öðru tagi en einnig liggja eftir hann tvær sólóplötur, hann hefur aukinheldur verið nokkuð viðloðandi leikhústónlist. Daníel Ágúst fór sem fulltrúi Íslands í Eurovision keppnina 1989, þegar hann söng lag Valgeirs Guðjónssonar, Það sem enginn sér.

Gunnlaugur Helgason sem löngum hefur verið kenndur við dagskrárgerð og reyndar einnig húsasmíði er fimmtíu og fjögurra ára gamall í dag. Gunnlaugur á sér tónlistarferil sem alltof fáir vita af en hann var á árum áður trommuleikari í hljómsveitinni Draumsýn sem starfaði í Réttarholtsskóla. Hann hefur lítið fengist við trommuleik hin síðari ár eftir því sem best er vitað.

Bragi Valdimar Skúlason, oftast tengdur við Baggalút og sjónvarpsþættina Orðbragð er fjörtíu og eins árs gamall í dag. Auk þess að vera afkastamikið texta og tónskáld hefur Bragi Valdimar komið víða við í tónlist, hann var til að mynda gítarleikari í hljómsveitum eins og Kalk, Klamidíu X, Sýróp, Níkaragva group og Zorglúbb.

Þá hefði Seyðfirðingurinn Ingi T. Lárusson (f. 1892) átt afmæli í dag en hann var þekkt tónskáld á árum áður og samdi mörg kunn sönglög, þeirra á meðal má nefna Ó blessuð vertu sumarsól, Litla skáld á grænni grein, Það er svo margt og Ég bið að heilsa (Nú andar suðrið). Hann var einnig organisti og stjórnaði kórum eystra þrátt fyrir að hafa aldrei fengið tónlistarlega menntun. Ingi T. lést 1946 eftir veikindi.