Afmælisbörn 25. apríl 2018

Ólafur Páll Gunnarsson

Tvö tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu dagins:

Skagamaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson dagskrárgerðarmaður á Rás 2 er fjörutíu og níu ára í dag en hann hefur kynnt tónlist, íslenska sem erlenda, í útvarpsþáttum sínum á Ríkisútvarpinu, langlífastur þeirra er Rokkland en hann hefur verið á dagskrá í tutttugu ár. Hann hefur annast sviðskynningu á Músíktilraunum um árabil en einnig leikið á gítar í nokkrum Skagatengdum hljómsveitum, þeirra á meðal má nefna sveitirnar Ópal og Magnús.

Jens Ólafsson (Jenni í Brain police) söngvari frá Akureyri er fertugur í dag og á því stórafmæli en auk þess að syngja með Brain police hefur hann einnig gert garðinn frægan með Toy machine, Best fyrir, Hot damn og Gimp.