Ég býð þér upp í dans
(Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson)
Heyrðu Lína,
magapína, viltu ekki dansa við mig
á gólfteppinu
eftir útvarpinu,
komdu elskan og knúsaðu mig.
Valdi kaldi
með kúk í haldi,
farðu‘ úr skónum og skrepptu svo fram
og náðu‘ í meira
Port Madeira,
nú skal verða æðislegt djamm.
Við vorum í den tíð eitt djöfull flott par
og dönsuðum alla‘ upp úr skónum.
Ég býð þér upp í dans.
Lína beibí,
viltu Grape í
vodkann og settu Bítlana á,
ég ætla‘ að hringa
í Stellu‘ hans Inga
og fá þau yfir, æ – lækkaðu smá.
Við vorum í den tíð eitt djöfull flott par
og dönsuðum alla‘ upp úr skónum.
Ég býð þér upp í dans.
Í morgunsárið
með ógreitt hárið
skríður Valdi‘ út í sjoppu öldungis glær.
Kaupir pilla,
hittir Villa
nýskilinn í bíltúr með dæturnar tvær
dararara…
Ég býð þér upp í dans.
[af plötunni Spilverk þjóðanna – Bráðabirgðabúgí]