Afmælisbörn 8. júlí 2021

Magnús Einarsson

Í dag eru þrjú afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Söngkonan og lagahöfundurinn Védís Hervör Árnadóttir er þrjátíu og níu ára gömul. Védís vakti fyrst athygli fyrir söng sinn á Nemendamótum Verzló en hún hefur einnig gefið út tvær sólóplötur, 2001 og 07. Hún hefur einnig komið fram sem gestur á ýmsum útgefnum plötum og var ein Frostrósa sem fóru mikinn á jólatónleikamarkaðnum fyrir nokkru. Védís hefur látið sig félagsamál tónlistarkvenna varða en hún var um tíma formaður KÍTÓN.

(Jóhannes) Garðar Jóhannesson harmonikkuleikari átti einnig afmæli á þessum degi en hann lést árið 2003. Garðar sem fæddist 1925, ólst upp við harmonikkuleik og lék sjálfur á sínu fyrsta balli aðeins þrettán ára gamall, hann lék síðan með fjölda hljómsveita s.s. fyrstu útgáfu Hljómsveitar Svavars Gests, auk þess að starfrækja einnig eigin hljómsveitir. Hljómsveitaferill Garðars spannaði yfir hálfa öld.

Þá er einnig hér nefndur Magnús Einarsson tónlistarfrömuður á Akureyri sem fæddur var árið 1848 að öllum líkindum á þessum degi (en heimildum ber ekki nákvæmlega saman um það). Magnús stofnaði og stjórnaði fjölmörgum kórum og lúðrasveitum á Akureyri og nágrenni, starfaði sem organisti og söngkennari, og samdi einnig tónlist, hann má með réttu kalla manninn á bak við akureyskt tónlistar- og menningarlíf um aldamótin 1900. Magnús lést árið 1934.

Vissir þú að Love Guru er aukasjálf Dodda litla (Þórðar Helga Þórðarsonar) dagskrárgerðarmanns á Rás 2?