Afmælisbörn 28. febrúar 2026

Afmælisbörnin eru átta á þessum síðasta degi febrúar mánaðar: Fyrsta skal nefna Maríu Baldursdóttur söngkonu, hárgreiðslumeistara og fyrrum fegurðardrottningu Íslands en hún er sjötíu og níu ára gömul í dag. María (sem er ekkja Rúnars Júlíussonar) hóf söngferil sinn með í Keflavík með Skuggum en söng síðar með Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, Bluebirds, Heiðursmönnum, Geimsteini, Áhöfninni…

Afmælisbörn 27. febrúar 2026

Glatkistan hefur í dag að geyma fimm afmælisbörn úr tónlistargeiranum: Helgi Hermannsson gítarleikari og söngvari frá Vestmannaeyjum er sjötíu og átta ára gamall í dag. Helgi starfaði með ýmsum hljómsveitum í Vestmannaeyjum hér fyrrum og síðar einnig uppi á landi en meðal þeirra má nefna Bobba, Loga, Hljómsveit Gissurar Geirs, Skugga og Víkingasveitina. Þá hefur…

Afmælisbörn 26. febrúar 2026

Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á lista Glatkistunnar: Það er fiðluleikarinn Björn Ólafsson sem átti þennan afmælisdag en hann lést árið 1984. Björn (f. 1917) er talinn meðal frumkvöðla í íslensku tónlistarlífi að mörgu leyti, hann hafði numið hér heima af Þórarni Guðmundssyni en fór síðan til Austurríkis í framhaldsnám og var alltaf ætlunin…

Afmælisbörn 25. febrúar 2026

Á þessum degi eru sex afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Þorsteinn Eggertsson textaskáld, teiknari og tónlistarmaður er áttatíu og fjögurra ára gamall í dag, þekktastur er hann fyrir textagerð sína, einkum frá áttunda áratug síðustu aldar. Hann samdi ógrynni dægurlagatexta sem flestir þekkja enn í dag en þar má nefna Slappaðu af, Ég elska alla og…

Afmælisbörn 24. febrúar 2026

Sex afmælisbörn eru skráð á þessum degi: Engilbert Jensen söngvari og trommuleikari er áttatíu og fimm ára gamall en hann eru auðvitað þekktastur sem söngvari Hljóma, Trúbrota og Ðe lónlí blú bojs. Lög á borð við Bláu augun þín, Heim í Búðardal og Leyndarmál eru öllum kunn. Hann var einnig í öðrum sveitum sem gerðu…

Afmælisbörn 23. febrúar 2026

Afmælisbörn dagsins eru fjögur að þessu sinni: Baldvin Kristinn Baldvinsson baritónsöngvari og bóndi er sjötíu og sex ára í dag. Hann er annar Rangárbræðra (frá Rangá í Köldukinn) en þeir gáfu út plötu árið 1986, en einnig hefur Baldvin sungið einsöng með karlakórnum Hreimi á plötum sem kórinn hefur gefið út. Eftir Baldvin (sem er…

Afmælisbörn 22. febrúar 2026

Fjölmörg afmælisbörn eru skráð á þessum degi hjá Glatkistunni: Davíð Þór Hlinason gítarleikari er fimmtíu og sex ára í dag en hann hefur birst í hinum ýmsu hljómsveitum allt frá því að hann var í Sérsveitinni árið 1989. Aðrar sveitir sem Davíð hefur verið í eru t.d. Dos Pilas, Buttercup og nú síðast Nykur þar…

Afmælisbörn 21. febrúar 2026

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Magnús Kjartan Eyjólfsson fagnar fjörutíu og þriggja ára afmæli sínu á þessum degi en hann er líklega þekktastur sem brekkusöngvari og trúbador, Magnús Kjartan hefur einnig verið söngvari og gítarleikari Stuðlabandsins og starfað með hljómsveitum eins og Oxford, Moðhaus, Lokbrá, Kántrýsveitinni Klaufum og fleiri sveitum. Harmonikkuleikarinn…

Afmælisbörn 20. febrúar 2026

Afmælisbörn dagsins eru sjö talsins á þessum degi: Ólöf Kolbrún Harðardóttir söngkona er sjötíu og sjö ára gömul í dag. Hún nam söng við Tónlistarkóla Kópavogs og síðar í Þýskalandi, Ítalíu og Austurríki og þegar hún kom heim að námi loknu hóf hún að kenna söng auk þess að syngja, bæði opinberlega og á plötum.…

Afmælisbörn 19. febrúar 2026

Á þessum degi eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á lista Glatkistunnar: Hanna Steina (Jóhanna Steinunn) Hjálmtýsdóttir söngkona fagnar sextíu og fjögurra ára afmæli í dag. Eins og flestir vita er hún dóttir Hjálmtýs Hjálmtýssonar söngvara og þ.a.l. systir Páls Óskars og Diddúar en hún hefur sungið með fjölmörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. Þeirra á meðal eru…

Cantores Islandiae – Móðir guðs og hirðir Íslands

Á 15:15-tónleikum í Breiðholtskirkju laugardaginn næstkomandi, 21. febrúar, flytur sönghópurinn Cantores Islandiae ásamt hljóðfæraleikurum brot úr Þorlákstíðum, íslenskum tíðasöng til heiðurs Þorláki helga Skálholtsbiskupi, og fjölbreytta tónlist, íslenska og evrópska, til heiðurs Maríu guðsmóður. Þorlákstíðir eru tíðagjörð sem sungin var til heiðurs Þorláki helga Þórhallssyni, biskupi í Skálholti á 12. öld. Hann lést á Þorláksmessu…

Afmælisbörn 18. febrúar 2026

Glatkistan hefur að þessu sinni þrjú afmælisbörn á skrá: Halldór Haraldsson píanóleikari er áttatíu og níu ára gamall í dag. Hann nam hér heima og í London, hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, kennt á píanó í og gegnt stöðu skólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík, gegnt ábyrgðarstörfum fyrir FÍT og önnur félagssamtök hér heima og erlendis svo…

Blúskvöld á Ölveri

Næsta Blúskvöld á vegum Blúsfélags Reykjavíkur verður haldið næstkomandi fimmtudagskvöld 19. febrúar kl. 20, á Ölveri í Glæsibæ. Þar munu hljómsveitirnar Ebenezer, GG blús og Rót spila. Gefið sófanum frí og njótið kvöldsins með okkur. Blúsaðir börgerar á matseðli og kaldur á krananum. Aðgangseyrir er 3.000 kr. Miðasala á MiðiX

Afmælisbörn 17. febrúar 2026

Í dag eru sjö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar – dagur stórafmælanna: Magnús Ólafsson skemmtikraftur og söngvari (Bjössi bolla) á stórafmæli en hann er áttræður á þessum degi. Tónlistarferill Magnúsar er mun stærri en fólk gerir sér almennt fyrir, hann ásamt Þorgeiri Ástvaldssyni söngvara gaf út tvær plötur undir nöfnum Hurðaskellis og Stúfs (og reyndar…

Afmælisbörn 16. febrúar 2026

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjögur á þessum degi: Björn Thoroddsen gítarleikarinn kunni er sextíu og átta ára gamall á þessum degi. Björn er upphaflega úr Hafnarfirðinum og var þar í fjölmörgum hljómsveitum áður en hann fór til Bandaríkjanna í framhaldsnám í gítarleik. Um það leyti er hann kom heim aftur sendi hann frá sér sína fyrstu…

Afmælisbörn 15. febrúar 2026

Í dag eru afmælisbörnin fimm talsins á skrá Glatkistunnar: Hörður Bragason organisti er sextíu og sjö ára gamall á þessum degi. Þó að hann sé fyrst og fremst þekktur í dag sem organisti og undirleikari lék hann með ýmsum þekktum og óþekktum hljómsveitum á árum áður. Þeirra á meðal má nefna orgelkvartettinn Apparat, Bruna BB,…

Afmælisbörn 14. febrúar 2026

Afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú að þessu sinni: Jón Ingi Valdimarsson bassaleikari Greifanna frá Húsavík er sextíu og eins árs gamall á þessum degi. Jón Ingi hefur verið í Greifunum frá upphafi en sveitin gekk fyrst undir nafninu Special treatment og hefur gefið út fjölda vinsælla laga og platna í gegnum tíðina. Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari…

Afmælisbörn 13. febrúar 2026

Í dag eru tvö afmælisbörn á lista Glatkistunnar: Klarinettuleikarinn Kjartan Óskarsson fagnar sjötíu og tveggja ára afmæli á þessum degi. Kjartan nam klarinettuleik hér heima og í Austurríki og hefur starfað á ýmsum vettvangi sem tónlistarmaður og -kennari, hann hefur t.a.m. starfað með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Chalumeaux tríóinu og Blásarasveit Reykjavíkur (sem hann stofnaði), stjórnað lúðrasveitum…

Afmælisbörn 12. febrúar 2026

Fimm afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Franz Gunnarsson gítarleikari Ensíma er fimmtíu og eins árs gamall á þessum degi. Franz hefur auk þess að vera einn af meðlimum Ensíma, verið í þekktum sveitum eins og Dr. Spock, Quicksand Jesus og Moody company en einnig minna þekktum á sínum yngri árum s.s. Dagfinni dýralækni…

Afmælisbörn 11. febrúar 2026

Glatkistan hefur í dag upplýsingar um tvö afmælisbörn tengd tónlistargeiranum: Berglind Björk Jónasdóttir söngkona er sextíu og sjö ára í dag. Hún er ein þriggja Borgardætra en hefur að auki sungið með hljómsveitum eins og Snillingunum og Saga Class. Söng Berglindar er að finna á plötum fjölmargra listamanna s.s. Geirmundar Valtýssonar, Guðrún Gunnarsdóttur, Rúnars Þórs,…

Afmælisbörn 10. febrúar 2026

Tvö afmælisbörn koma við sögu í dag: Jóhann Bachmann Ólafsson (Hanni Bach) trommuleikari frá Selfossi er fimmtugur á þessum degi og fagnar því stórafmæli. Hanni hefur leikið með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina en þekktastar þeirra eru Skítamórall og Írafár. Aðrar sveitir eru til dæmis Loðbítlar, Poppins flýgur og Boogie knights svo fáeinar séu tíndar…

Afmælisbörn 9. febrúar 2026

Og enn eru það afmælisbörn dagsins á skrá Glatkistunnar: Egill Ólafsson tónlistarmaður er sjötíu og þriggja ára í dag. Hann er einn af þekktustu söngvurum þjóðarinnar og hefur sungið með mörgum af vinsælustu hljómsveitunum, þar má nefna Spilverk þjóðanna, Stuðmenn og Þursaflokkinn en hann hefur einnig sungið með minna þekktum sveitum eins og 3to1, Tamlasveitinni,…

Afmælisbörn 8. febrúar 2026

Afmælisbörnin eru fimm talsins í dag: Fyrstan skal nefna Jónatan Garðarsson tónlistarséní sem er sjötíu og eins árs gamall í dag en hann hefur verið viðloðandi tónlist í áratugi með einum og öðrum hætti. Hann hefur verið í hljómsveitum, samið lagatexta, skrifað um tónlist og starfað sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi, komið að félags- og réttindamálum…

Afmælisbörn 7. febrúar 2026

Afmælisbörn dagsins eru fimm talsins en öll eru þau látin: Gylfi Þ. Gíslason tónskáld og stjórnmálamaður (1917-2004) hefði átt þennan afmælisdag en hann samdi sönglög sem mörg hafa komið út á plötum. Hann samdi m.a. lög við ljóð Tómasar Guðmundssonar sem margir þekkja, t.d. Hanna litla, Ég leitaði blárra blóma, og Lestin brunar. Þorvaldur Steingrímsson…

Afmælisbörn 6. febrúar 2026

Fjölmörg afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu í dag: Signý Sæmundsdóttir sópransöngkona er sextíu og átta ára gömul í dag, hún hefur sungið á fjölmörgum plötum, meðal annars með Bergþóri Pálssyni og sem einsöngvari með kórum. Hún hefur einnig raddþjálfað og stjórnað söngkvartettnum Út í vorið og kammerkórnum Ópus 12 / Kammerkór Þorgeirs. Einar Tönsberg…

Afmælisbörn 5. febrúar 2026

Fjögur afmælisbörn koma við sögu í dag: Halldór Kristinsson (Dóri Tempó) á sjötíu og sex ára afmæli í dag. Halldór var áberandi í íslensku tónlistarlífi í kringum 1970, vakti reyndar fyrst athygli nokkrum árum fyrr með unglingahljómsveitinni Tempó, fyrst sem trommuleikari og síðan bassaleikari, en varð þekktastur með Þremur á palli sem naut fádæma vinsælda.…

Afmælisbörn 4. febrúar 2026

Glatkistan hefur upplýsingar um tvö afmælisbörn í dag: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir tónlistar- og fjöllistakona er fjörutíu og sjö ára gömul í dag. Hún hefur haslað sér völl sem myndlistamaður m.a. með myndasögum sínum (Lóaboratoríum) en er þekktari í tónlistarbransanum sem söngkona og annar stofnandi hljómsveitarinnar FM Belfast, sem hefur gefið út nokkrar breiðskífur. Þá hefur…

Afmælisbörn 3. febrúar 2026

Afmælisbörn dagsins eru þrjú að þessu sinni: Flautuleikarinn Guðrún S. Birgisdóttir er sjötug og fagnar því stórafmæli í dag. Guðrún nam flautuleik hjá Manuelu Wiesler hér heima áður en hún fór í framhaldsnám í Noregi og Frakklandi þar sem hún lauk einleikaraprófi, en hún starfaði í París í fáein ár áður en hún kom heim…

Afmælisbörn 2. febrúar 2026

Í dag er einn tónlistarmaður á lista yfir afmælisbörn dagsins: Magnús (Þórarinn) Baldvinsson söngvari er sextíu og átta ára gamall á þessum degi. Hann hefur mestmegnis alið manninn erlendis, einkum í Evrópu hin síðari ár en áður í Bandaríkjunum þar sem hann hafði verið við framhaldsnám í söng. Magnús, sem er bassi sendi árið 1992…

Afmælisbörn 1. febrúar 2026

Í dag eru fimm afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Birgir Örn Thoroddsen (Bibbi Curver) fagnar stórafmæli en hann er fimmtugur í dag. Curver sem á sínum tíma kallaði sig „trúbador framtíðarinnar“ hefur mestmegnis starfað í hljóðverum hin síðari ár en áður sendi hann frá sér fjölmargar plötur (og kassettur), t.a.m. „mánaða-plöturnar“ og plötuna Sjö. Hann hefur…