Afmælisbörn 18. júní 2024

Ólafur Hólm

Afmælisbörn dagsins eru tvö að þessu sinni:

Ólafur Hólm (Einarsson) trymbill er fimmtíu og fjögurra ára gamall í dag. Ólafur hefur um árabil verið trommuleikari hljómsveitarinnar Nýdanskrar en hann hefur leikið með ótal öðrum sveitum, þeirra á meðal eru Todmobile, Tweety, Burkina Faso og Dægurlagacombó Jóns Ólafssonar. Ólafur hefur einnig komið við sögu á plötum margra tónlistarmanna sem session leikari en þær plötur skipta mörgum tugum.

Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður á einnig afmæli í dag en hann er fimmtíu og þriggja ára. Hann vakti fyrst athygli manna í hljómsveitinni Birthmark en í seinni tíð hefur hann mestmegnis starfað sem upptökumaður í hljóðveri sínu, Gróðurhúsinu, rekið útgáfufyrirtækið Bedroom Community, og starfað sem tónskáld en hann hefur gefið út sólóplötur sem vakið hafa verðskuldaða athygli. Valgeir hefur starfað með fleiri hljómsveitum en þar má nefna Beefcake, Puzzle Muteson og Envelope.

Vissir þú að hljómsveit sem bar nafnið Bændur og búalið keppti í hljómsveitakeppni í Húsafelli um verslunarmannahelgina 1987?