Síðustu nöfnin bætast við á Iceland Airwaves 2023
Nú liggur fyrir hvaða tónlistaratriði koma fram á Iceland Airwaves 2023. Fjöldinn allur af frábærlega flottum, ofur hipp og ótrúlega skemmtilegum atriðum mun spila í miðborg Reykjavíkur í nóvember. Meðal nýjustu nafnanna sem nú slást í hópinn eru okkar allra besti Daði Freyr, iðnaðar teknópönk-rokk- og sviðsframkomugoðsagnirnar í Hatara, heimaræktaði rapparinn GKR, indí-folkstjarnan Axel Flóvent, hin dáleiðandi JFDR, hin…