Kraumstilnefningar 2023 opinberaðar

Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun Auroru velgerðarsjóðs, verða afhent í sextánda sinn síðar í þessum mánuði fyrir þær íslensku hljómplötur er þykja skara fram úr hvað varðar gæði, metnað og frumleika.

Dómnefnd verðlaunanna hefur nú valið þær plötur er hljóta tilnefningar til Kraumsverðlaunanna í ár, og skipa þar með Kraumslistann 2023. Það sem einkennir tilnefningarnar í ár er gríðarmikil fjölbreytni – þar sem sú gróska sem ríkir í íslensku tónlistarlífi á sviði popp, rokk, jazz, teknó, hip hop, þjóðlaga- og tilraunatónlist er hampað. Stór hluti þeirra listamanna sem eru tilnefnd til Kraumsverðlaunanna 2023 eru að koma fram á sjónasviðið með sínar fyrstu breiðskífum.

Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa rúmlega áttatíu listamenn og hljómsveitir hlotið Kraumsverðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferlinum, frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 2008.

Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa Kraumsverðlaun fyrir plötur sínar eru; Ásgeir, Cell7, Daníel Bjarnason, FM Belfast, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Ólöf Arnalds, Retro Stefson og Sóley.

Það er Aurora velgerðarsjóður sem stendur að Kraumsverðlaununum. 

Kraumslistann 2023 (tilnefningar til Kraumsverðlaunanna) skipa eftirfarandi:

  • Apex Anima – ELF F O
  • Daniiil – 600
  • Elín Hall – Heyrist í mér
  • Eva808 – Öðruvísi
  • ex.girls – Verk
  • Flexi lyfseðill – behov
  • Flyguy – Bland í poka
  • Ingibjörg Elsa Turchi – Stropha
  • Intr0beatz – Fókus
  • Jadzia – Hidden Universe EP
  • Jelena Ciric – Shelters Two
  • Kári – Palm Trees In The Snow
  • Laufey – Bewitched
  • Lúpína – Ringluð
  • MSEA – Our Daily Apocalypse Walk
  • Neonme – Premiere
  • Skorri – Go Ahead!
  • Spacestation – Bæbæ
  • Sunna Margrét – Five Songs For Swimming
  • Xiupill – Pure Rockets