La Dolce Vita (Þjóðhátíðarlag 2011)

La Dolce vita (Þjóðhátíðarlag 2011) (Lag / texti: Trausti Haraldsson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Nú er ég búinn að gera mig sætan, sjóðheitur ég verð að mæta’ og upplifa La Dolce Vita. Nú er ég búinn að reima skóna, til að dansa’ í nótt við töfratóna í La Dolce vita. Aha ég segi það satt,…

Viltu elska mig á morgun (Þjóðhátíðarlag 2010)

Viltu elska mig á morgun (Þjóðhátíðarlag 2010) (Lag og texti: Kristján Kristjánsson (KK) Viltu elska mig á morgun eins og ég elska þig í dag? Eins og sumarkvöld eins og ljúflings lag. Viltu sigla með mér byrinn og standa uppí brú? Milli skers og báru, ég og þú. Stefnum uppá Eyju einn fagran sumardag, og…

Eyjan græna (Þjóðhátíðarlag 2009)

Eyjan græna (Þjóðhátíðarlag 2009) (Lag og texti: Bubbi Morthens) Eyjan mín, eyjan mín fagra græna. Eyjan mín, eyjan mín fagra græna. Eyjan mín, eyjan mín fagra græna. Eyjan mín, eyjan mín fagra græna. Fyrir löngu síðan fóru Tyrkirnir í ferð upp að Íslandsströndum. Í Vestmannaeyjum ætluðu sér alla að taka höndum. Um miðja nótt neyddist…

Brim og boðaföll (Þjóðhátíðarlag 2008)

Brim og boðaföll (Þjóðhátíðarlag 2008) (Lag og texti: Hreimur Örn Heimisson) Sól, lýstu mína leið, svo logi sundin blá á leiðinni til þín. Nótt, leiðin verður greið. Mér liggur lífið á, því ég verð senn á leiðarenda. Kominn þessa leið, einfaldlega til að segja þér, án þín er ég bjargarlaus í neyð en ekki þegar…

Stund með þér (Þjóðhátíðarlag 2007)

Stund með þér (Þjóðhátíðarlag 2007) (Lag / texti: Eyvindur Steinarsson og Þórarinn Ólason / Heimir Eyvindarson) Líður að kveldi, ég læðist til þín. Logarnir liðast og vindur hvín. Stjörnur á himni, ég stari í þær. Færi mig nær. Eldarnir loga þó allt verði hljótt, ástin sem vakir jafnt dag sem nótt. Hvað sem ég geri,…

Ástfanginn í þér (Þjóðhátíðarlag 2006)

Ástfanginn í þér (Þjóðhátíðarlag 2006) (Lag og texti: Magnús Eiríksson) Fyrst kom vetur, svo kom vor, örstutt sumar, aftur haust. Mér fannst ég alltaf vera að stíga í sömu spor. Þegar þú komst inn í líf mitt, sólin gegnum skýin braust, til að breyta mínu lífi þurfti þor. Margir arka æviveginn eins og lest fer…

Í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 2004)

Í Herjólfsdal (Þjóðhátiðarlag 2004) (Lag / texti: Helgi Tórshamar / Helgi Tórshamar og Jórunn Emilsdóttir Tórshamar) Um fagra jörð stígur rómantík í fagran dans nú þegar tjaldborg hefur verið reist á grænni grund. Lundi stendur vörð og starir til andans meðan þú gleðst með góðum vinum á góðri stund. Ljúft andartak hér varðveitir leyndarmál með…

Draumur um þjóðhátíð (Þjóðhátíðarlag 2003)

Draumur um þjóðhátíð (Þjóðhátíðarlag 2003) (Lag og texti: Gunnar Ingi Guðmundsson og Ellert Rúnarsson) Það eitt er víst að alltaf geng ég að í ágústbyrjun þér sem samastað, hér rísi tjaldborg upp að gömlum sið og nú er liðin þessi langa bið. Eyjan sem eitt sinn undir ösku lá, þar lifna vonir við og lífsins…

Vinátta (Þjóðhátíðarlag 2002)

Vinátta (Þjóðhátíðarlag 2002) (Lag og texti: Hreimur Örn Heimisson og Lundakvartettinn) Ég legg upp í ferðalag á nýjan og framandi stað, vonandi verður þú þar. Það er dularfull ágústnótt, ég horfi á allt þetta fólk, ólýsanleg vinátta. Ég loka augunum, þú færir þig nær og ég finn hvernig hjartað slær. Á þjóðhátíð, þar hitti ég…

Í Vestmannaeyjum (Þjóðhátíðarlag 2000)

Í Vestmannaeyjum (Þjóðhátíðarlag 2000) (Lag og texti: Heimir Eyvindarson) Ég horfi út í himinbláa nóttina í Herjólfsdal og reyni‘ að finna þig. Brekkan mín og Heimaklettur heilsa mér, hátíðin er hafin enn á ný Í tjaldi þar sem enginn sér er gott að eiga nótt með þér og á morgun mun ég Vakna upp í…

Á þjóðhátíð (Þjóðhátíðarlag 1998)

Á þjóðhátíð (Þjóðhátíðarlag 1998) (Lag / texti: Geirmundur Valtýsson / Guðjón Weihe og Geirmundur Valtýsson)   Við erum öll á þjóðhátíð, við erum öll á þjóðhátíð, við gerum á þjóðhátíð allt sem við viljum. Segja vil ég þetta þér þegar dans á völdin. Allra best ég uni mér inni í Dal á kvöldin. Hér er…

Sumarnótt [3] (Þjóðhátíðarlag 1996)

Sumarnótt [3] (Þjóðhátíðarlag 1996) (Lag og texti: Kristján Viðar Haraldsson og Sveinbjörn Grétarsson) Húmar að kveldi, nóttin læðist inn, dúnalogn í Dalnum, rætist draumur minn. Með hnotubrúnum augum horfir þú til mín, í öllum mínum æðum brennur ást til þín. Söngvar óma úr hverju tjaldi, gleðja sérhvert hjarta. Þjóðhátíðarstemmingin og sumarnóttin bjarta. Haltu mér í…

Þúsund eldar (Þjóðhátíðarlag 1995)

Þúsund eldar (Þjóðhátíðarlag 1995) (Lag / texti: Þorvaldur Guðmundsson / Sigurður Óli Hauksson) Hér lifa þúsund eldar, loga lífsins tré. Ég man þig bjarta meyja, margar stjörnur sé. Ég þig mun ætíð elska, alla mína tíð, komdu vina, komdu fljótt, kæra þjóðhátíð. Þú eyjan mín ætíð fögur ert, þín fegurð skær en hvergi skert þótt…

Út við Sund og Eyjar (Þjóðhátíðarlag 1994)

Út við Sund og Eyjar (Þjóðhátíðarlag 1994) (Lag / texti: Gísli Helgason / Guðjón Weihe) Út við sund og Eyjar ómar hlátur skær. Á fjallamenn og meyjar mánaleiftri slær. Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund, leiftri slær á báru við Suðureyjarsund. Er dvína dagsins ómar og dofnar sólarglóð, kvöldsins hörpuhljómar heilla dreng og fljóð. Stjörnubjartur himinn…

Alltaf á Heimaey (Þjóðhátíðarlag 1993)

Alltaf á Heimaey (Þjóðhátíðarlag 1993) (Lag / texti: Eyjólfur Kristjánsson og Gísli Helgason / Ingi Gunnar Jóhannsson) Þegar logarnir dansandi lýsa upp tjöld hljóma lögin sem kunnum við flest. Þá í hjartanu veit ég að öld eftir öld, verður alltaf á Heimaey best. Er sumarið mig vængjum sínum vefur vaknar gömul þrá í brjósti mér.…

Næturfjör (Þjóðhátíðarlag 1990)

Næturfjör (Þjóðhátíðarlag 1990) (Lag / texti: Ólafur M. Aðalsteinsson / Guðjón Weihe) Hamrarnir háu í heillandi tign, tjöldin og tjörnin svo töfrandi lygn. Lokkandi laða í logunum skýrð. Hvern sem að kemur í klettanna dýrð. Hér finn ég framandi og funheita glóð, sem eldur í æðunum ólgar mitt blóð. Danslagið dunar við dillandi söng. Nú…

Ég meyjar á kvöldin kyssi (Þjóðhátíðarlag 1988)

Ég meyjar á kvöldin kyssi (Þjóðhátíðarlag 1988) (Lag / texti: Ólafur M. Aðalsteinsson / Guðjón Weihe) Undrin gerast enn þá hér í Dalnum, allt sem lifir tekur gleðisprett. Undir fótinn hrundin gefur halnum hiklaust bak við lýstan Fjósaklett. Með ástarheitum kossaflaum er kannað hvort að þeim sé Amorsörin send. Þegar kvöldar skeður eitt og annað…

Síðasti dans í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1987)

Síðasti dans í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1987) (Lag / texti: Kristinn Svavarsson / Árni Johnsen) Það kvöldar við bergið og blær fer um strönd. það brimar í hjarta og hlý er mín hönd. Hljóðlát fer nóttin um hlíðar og grund og helgar okkar fund. Ég finn að við elskum hvort annað svo heitt. Eitthvað í hjartanu…

Dalbúinn (Þjóðhátíðarlag 1986)

Dalbúinn (Þjóðhátíðarlag 1986) (Lag / texti: Ólafur M. Aðalsteinssson / Guðjón Weihe) Svaraðu, svaraðu, svaraðu, svaraðu, segðu ekki nei. Svaraðu, svaraðu, svaraðu, svaraðu, segðu ekki nei. Heyrði ég hvíslað hamraveggnum frá, hér á ég heima hulduslóðum á. Fegurðin fyllir fjallasalinn minn. Hann er minn heimur Herjólfsdalurinn. Svaraðu, svaraðu, svaraðu, svaraðu, segðu ekki nei. Svaraðu, svaraðu,…

Í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1985)

Í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1985) (Lag / texti: Lýður Ægisson / Guðjón Weihe) Í Herjólfsdal vil ég vera, vaka þar kvöldin löng. Ævintýrin bjarmar bera, brekkurnar óma af söng. Í Herjólfsdal vil ég vera, vaka þar kvöldin löng. Ævintýrin bjarmar bera, brekkurnar óma af söng. Mig heilla dalsins hlýju ágústnætur við húmsins skýru ævintýrarún. Logar bálið,…

Ástin bjarta (Þjóðhátíðarlag 1984)

Ástin bjarta (Þjóðhátíðarlag 1984) (Lag og texti: Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ) Innst í hjarta, ástin bjarta, er að starta mér, það er þessi eina, ástin sanna hreina, sem aldrei kann að leyna sér. Blóðið er á tampi, bruni sem í hampi, blossandi lampi inn í mér. Brosið hennar brosið, beggja vara flosið, ærir mig…

Gaman og alvara (Þjóðhátíðarlag 1983)

Gaman og alvara (Þjóðhátíðarlag 1983) (Lag og texti: Kristinn Bjarnason) Á þjóðhátíð Eyjanna allir sér skella fjörið er mikið og fólkið er margt. Á pallana hljómsveitir hljóðfærum smella og rótarar tengja þau meðan er bjart. Í dalnum er sungið og spilað og hlustað á hlægilegt spjall. En mæðurnar vilja að dætrum sé skilað svo lendi…

Hátíð í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1982)

Hátíð í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1982) (Lag / texti: Sigurjón Ingólfsson / Snorri Jónsson) Höldum hátíð í Herjólfsdal þeim hrífandi fjallasal, er geymir vor ljúfustu leyndarmál og lifir fagur í vorri sál. Myndin sem mest á ber og meitluð í hjartað er, sýnir húmið létt, læðast um hlíðar og dal, sig hjúfrar að meyju og hal.…

Í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1981)

Í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1981) (Lag og texti: Ingólfur Jónsson) Nú himneskt er í Herjólfsdal, svo hefjum söng og gleði því þjóðhátíð hér halda skal, þá blanda allir geði. Gleðifundur, ­glettnishjal, gönguferðir um hamrasal, tveggja sálna tal. Vinum góðum vaka með, þá vefja örmum skal. Já vinum góðum vaka með, þá vefja örmum skal. Í ágúst…

Út í Elliðaey (Þjóðhátíðarlag 1980)

Út í Elliðaey (Þjóðhátíðarlag 1980) (Lag og texti: Valur Óskarsson) Út í Elliðaey situr lítill lundi, leggur kollhúfur og horfir á þegar bátar sigla hægt á hafið höfninni í Vestmannaeyjum frá. En niðri á bryggju nokkrir strákar standa, stara hugfangnir á karlana sem landa fiski, bölva hátt og hrópa, en horfa stundum blítt á peyjana.…

Peyjaminning (Þjóðhátíðarlag 1979)

Peyjaminning (Þjóðhátíðarlag 1979) (Lag / texti: Gísli Helgason / Hafsteinn Snæland) Nú leitar minn hugur á heimaslóð, mér helg er sú minning og kær. Þú, Eyjan mín, reyndist mér ungum svo góð og enn þú stendur hjarta nær. Þótt örlögin bæru mig burt frá þér og bindi mig fjarri þér enn, þá vonin í draumi…

Á þjóðhátíð (Þjóðhátíðarlag 1978)

Á þjóðhátíð (Þjóðhátíðarlag 1978) (Lag og texti: Árni Sigfússon) Dagur er risinn, úr djúpinu lyftir sér sól og brosir til barna á eyju er bar þau og ól. Af hafinu öldur, glettnar berast að strönd og flytja fregn um ókunn lönd. Þessi ágústnótt hún skal gleðja, hún skal oss kær þessi nótt á Heimaey. Nú…

Dalurinn fagri og dætur hans (Þjóðhátíðarlag 1977a)

Dalurinn fagri og dætur hans (Þjóðhátíðarlag 1977a) (Lag / texti: Sigurður Óskarsson / Snorri Jónsson) Þó víða um heiminn liggi leið ber ljúfa ágústnóttin seið. Hún fyllir alla ferskri þrá, því fegurð dalsins Eyjaskeggjar dá. Okkar Herjólfsdal, þennan fagra fjallasal, þar er fjör og líf er fögnum við þar saman þjóðhátíð. Sama hvert menn sigla…

Herjólfsdalur 1977 (Þjóðhátíðarlag 1977b)

Herjólfsdalur 1977 (Þjóðhátíðarlag 1977b) (Lag og texti: Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ)) Herjólfsdalur, orðinn eins og nýr, svo yndislega grænn sem fyrr á dögum. Herjólfsdalur, öll þau ævintýr sem áttum við í þínum sumarhögum. Þau gleymast ei, en geymast hverjum þeim sem gleðistundir þínar meta kunni. Í faðmi þér, mér finnst ég kominn heim, og…

Vornótt í Eyjum (Þjóðhátíðarlag 1976)

Vornótt í Eyjum (Þjóðhátíðarlag 1976) (Lag / texti: Sigurður Óskarsson / Þorsteinn Lúther Jónsson) Í Eyjunum lífsgleðin ljómar er ljósbjört þar vornóttin skín, og lífsvakans aflmiklu ómar þeir ástfangnir berast til þín. Fuglarnir kliða við kletta og kafa í sædjúpin köld, en hafaldan lognværa létta sér leikur við þá í kvöld. Ég horfi á himininn…

Þjóðhátíðarlag (Þjóðhátíðarlag 1975)

Þjóðhátíðarlag (Þjóðhátíðarlag 1975) (Lag og texti: Gylfi Ægisson) Nú hátíð enn við höldum það hlýlegt alltaf er, er hústjöldum við tjöldum teygum sykurvatn og ger, á Breiðabakka dönsum við og döðrum nú í ár, því Dalurinn er enn af vikri sár. Flugeldar og brenna, já gleði koma á kreik svo krakkar jafnt sem fullorðnir bregða sér á leik.…

Eyjan mín bjarta (Þjóðhátíðarlag 1974)

Eyjan mín bjarta (Þjóðhátíðarlag 1974) (Lag og texti: Gylfi Ægisson) Eyjan mín bjarta nú leik ég þér lag, svo ljómandi fögur þú ert. Ég dái þig ávallt hvern einasta dag, að dá þig er aldeilis vert. Nú sárin þín gróa, nú vermir þig sól, nú sóley á bökkum þér grær. Og alls konar fuglar enn…

Við höldum þjóðhátíð (Þjóðhátíðarlag 1973)

Við höldum þjóðhátíð (Þjóðhátíðarlag 1973) (Lag og texti: Árni Johnsen) Við höldum þjóðhátíð, þrátt fyrir böl og stríð, við höldum þjóðhátíð í dag. Við gleymum öskuhríð, Við gerumst ljúf og blíð, við syngjum saman lítið lag. Allt okkar líf er þessum eyjum bundið áfram við höldum með lífstíðarsundið, svo glöð og kát. Á Breiðabakkanum í bratta slakkanum,…

Eyjasyrpa (Þjóðhátíðarlag 1972)

Eyjasyrpa (Þjóðhátíðarlag 1972) (Lag / texti: Þorgeir Guðmundsson / Sigurbjörg Axelsdóttir) Fegurð, friðsæld og kyrrð finnst hvergi meiri en í Eyjanna byggð. Sumrin sífellt svo björt, síðkvöldin fögur er húmar að ört. Herjólfsdalur og Há. Helgafelli baðar sig geislum frá, sólarlagið er dásamleg sýn, allt þetta brosir til þín. Urðum útsýn ber af eyjum í…

Hugsað heim, ó fylgdu mér í Eyjar út (Þjóðhátíðarlag 1971)

Hugsað heim, ó fylgdu mér í Eyjar út (Þjóðhátíðarlag 1971) (Lag og texti: Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)) Ó, fylgdu mér í Eyjar út þar andar golan sumarhlý, og vinir bjóða vín af stút og viðtökurnar eftir því. Í Kafhelli þá fyrst ég fer því frændi lánar bátinn sinn, og sigli út um Súlnasker og síðan reika…

Bros þitt (Þjóðhátíðarlag 1970)

Bros þitt (Þjóðhátíðarlag 1970) (Lag / texti: Þorgeir Guðmundsson / Árni Johnsen) Við göngum tvö ein þar sem gjálfrar við hlein, um hlíð gárast vindsins kvika. Siglir bátur um bjarg, blundar fuglanna þvarg, ég sé bros þitt hjá Eyjunum blika. Þú átt líf mit og ljóð, þú átt æskunnar glóð, öll þín spor fylgja þrá…

Draumblóm þjóðhátíðarnætur (Þjóðhátíðarlag 1969)

Draumblóm þjóðhátíðarnætur (Þjóðhátíðarlag 1969) (Lag / texti: Þorgeir Guðmundsson / Árni Johnsen) Ég bíð þér að ganga í drauminn minn og dansa með mér í nótt um undraheima í hamrasal og hamingjan vaggar þér ótt. Nætur og dagar líða þar við lokkandi söngva klið, frá fólki við bjargið og fuglum við brún og fagnandi hafsins…

Svo björt og skær (Þjóðhátíðarlag 1968)

Svo björt og skær (Þjóðhátíðarlag 1968) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Loftur Guðmundsson) Svo björt og skær sem bjöllu gnýr við bakka lindin strengi knýr. Úr bláfirð nætur blærinn vær að beði daggar snýr. Er draumljós nóttin sveipar sund og sofnar fugl í mó, fer minning dags um dal og grund í dularhljóðri ró.…

Ungi vinur (Þjóðhátíðarlag 1966)

Ungi vinur (Þjóðhátíðarlag 1966) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)   Ef viltu ungi vinur að veröldin sé þín þá gakktu fram í gleði og gæfan við þér skín. Syng þú um sumarblæinn er sól af himni hlær og blæinn hlýja‘ og blómin í birtunni sem grær. Og þó máttu…

Vögguvísa [9] (Þjóðhátíðarlag 1965)

Vögguvísa [9] (Þjóðhátíðarlag 1965) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)) Ég vildi geta sungið þér sumarið að hjarta, sólskinsdaga bjarta mitt ljósra nátta ljóð. Ég vildi geta leikið þér lög og kviður ýta, landsins græna, hvíta með fornan sagnasjóð. Leiði þig dísir gullna gæfubraut en gæt þess barn, að mörg…

Þar sem fyrrum (Þjóðhátíðarlag 1964)

Þar sem fyrrum (Þjóðhátíðarlag 1964) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)) Þar sem fyrrum ypptu björtum ölduföldum Ægisdætur fram við sjónarrönd, rauðaglóðir leiftra hátt mót himintjöldum, hafði faðmar landsins yngstu strönd. Það var undur okkar bestu ævistunda út við Sund að mætast fyrsta sinn og við fundum innst í hjörtum…

Þá varstu ungur (Þjóðhátíðarlag 1963)

Þá varstu ungur (Þjóðhátíðarlag 1963) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)) Þá varstu ungur er burtu fórstu frá mér, fann á þínum orðum, eitthvað undir lá. Þá varstu ungur fyrsta sinn á förum fann á þínum vörum hjartað hraðar slá. Yfirgefin eftir stóð, ólgaði sautján vetra blóð. Svo liðu árin,…

Mæja litla (Þjóðhátíðarlag 1956)

Mæja litla (Þjóðhátíðarlag 1956) (Lag og texti: Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)) Á gallabuxum og gúmmískóm hún gengur árla dags, í fiskiverið frísk og kát og flakar til sólarlags. Í stöðinni er hún stúlkan sú er strákana heillar mest og svo er hún líka við fiskinn fín, hún flakar allra best. Hún Mæja litla með…

Vísan um dægurlagið (Þjóðhátíðarlag 1954)

Vísan um dægurlagið (Þjóðhátíðarlag 1954) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Sigurður Einarsson) Nú hljómar inn í bóndans bæ, í bíl á heiðarvegi, í flugvél yfir fold og byggð og fleytu á bláum legi. Þú hittir djúpan,dreyminn tón, sem dulinn býr í fólksins sál og okkar hversdags gleði og grát þú gefur söngsins væng og…

Síldarvísa (Þjóðhátíðarlag 1953)

Síldarvísa (Þjóðhátíðarlag 1953) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson) Þær heilsuðu okkur með svellandi söng síldarstúlkurnar og þá voru kvöldin svo ljós og löng en ljúfastar næturnar. Því við vorum ung og ástin hrein og ólgandi hjartans blóð. Og sumarið leið og sólin skein og síldin á miðunum óð. Ennþá…

Hve dátt er hér í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1950a)

Hve dátt er hér í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1950a) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson) Hve dátt er hér í Dalnum inni, er dagur lýkur göngu sinni og rökkrið hylur rósavanga, ó, rómantískt er hér að ganga um götur þær er gekk ég forðum og gladdi þig með ástarorðum. Þá kveikir Siggi…

Vorvísa [3] (Þjóðhátíðarlag 1950b)

Vorvísa [3] (Þjóðhátíðarlag 1950b) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson) Ég heyri vorið vængjum blaka og vonir mínar undir taka því ég er barn með sumar sinni og sólarþrá í vitund minni. Er blikar sær undr bláu hveli og blærinn vaggar smáu stéli og ástin skín úr augum þínum, ég…

Breytileg átt og hægviðri (Þjóðhátíðarlag 1949)

Breytileg átt og hægviðri (Þjóðhátíðarlag 1949) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson)) Breytileg átt um svalan sæ og síld er varla nokkur en allir vita, að Ási í Bæ er Íslands besti kokkur. Kveð ég um síldarkempurnar, ­kaldur er norðan svalinn ­ meðan ég svíf með Sigga Mar, sætmjúkur um Dalinn. Um…

Þjóðhátíðarvísa (Þjóðhátíðarlag 1948)

Þjóðhátíðarvísa (Þjóðhátíðarlag 1948) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / höfundur ókunnur) Þegar kvöldið kátt kyssir dag og nátt, mörgum yljar minning heit. Út við ystu sker aldan leikur sér, ­kveður sólin klettareit. Þegar rökkvar, dátt er hér í Dalnum, dansinn stiginn, óma hlátrasköll. Söngvar hljóma frjálst í fjallasalnum. Fléttast armar, bjartir bjarmar birtu slá um tind…

Á útlagaslóð (Þjóðhátíðarlag 1945)

Á útlagaslóð (Þjóðhátíðarlag 1945) (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson) Enn þá er fagurt til fjalla sem forðum í Eyvindar tíð, þegar sig hjúfraði Halla að hjarta hans, viðkvæm og blíð. Þegar um fjöllin þau fóru sem friðlausir útlagar þá, ást sinni eiða þau sóru sem öræfin hlustuðu á. Skiptust…