Hæsta hendin (2003-06)

Hip hop sveitin Hæsta hendin starfaði í fáein ár á fyrsta áratug aldarinnar, sendi frá sér eina skífu og kom fram á tvennum stórum tónleikum sem haldnir voru hér á landi. Sveitin var upphaflega fjögurra manna en síðar var yfirleitt talað um hana sem dúett. Hæsta hendin (ekki Hæsta höndin) var líklega stofnuð árið 2003…

Hæsta hendin – Efni á plötum

Hæsta hendin – Hæsta hendin Útgefandi: Hæsta hendin Útgáfunúmer: HENDI 001 Ár: 2004 1. Ousy og Uday 2. Botninn upp (feat. Elisabeth) 3. Westur 4. Hvað með það? 5. Febrúarþynnka 6. Kanamella 7. Krúsið með búsið 8. Norður (feat. Dansken, Nuuk Posse, Elastinen, Clemens, MC Hár & Professor P) 9. Ísland – Hvar ertu? 10.…

Hvanneyrarkvartettinn [2] (1965-68)

Hvanneyrarkvartettinn starfaði innan Bændaskólans á Hvanneyri á árunum 1965-68 en hann var einn þeirra sönghópa og kóra sem Ólafur Guðmundsson kennari við skólann stjórnaði, um áratug fyrr hafði t.a.m. annar slíkur kvartett starfað í skólanum. Ólafur var jafnframt undirleikari kvartettsins. Hvanneyrarkvartettinn var skipaður þeim Jóni Hólm Stefánssyni fyrsta tenór, Ólafi Geir Vagnssyni öðrum tenór, Jóhannesi…

Húskarlar í óskilum – Efni á plötum

Húskarlar í óskilum – Hlemmur-Hlíðarendi Útgefandi: Jón Sigurður Eyjólfsson Útgáfunúmer: JSE002 Ár: 2008 1. Það mælti mín móðir 2. Örninn 3. Gæðafundur með Gunnari 4. Þorpið milli hafs og himins 5. Út vil ek 6. Ég veit að Bubbi hefur sagt það 7. Ég spurði vindinn, fjallið, örninn og hjartað 8. Marías frændi kemur frá…

Húskarlar í óskilum (2008)

Húskarlar í óskilum var dúett þeirra Jóns Sigurðar Eyjólfssonar og Péturs Valgarðs Péturssonar en þeir félagar hafa starfað saman í hljómsveitum í gegnum tíðina. Húskarlar í óskilum virðist þó ekki hafa verið starfandi hljómsveit heldur einungis hljóðversverkefni þeirra félaga þar sem þeir gáfu út árið 2008 ellefu laga plötu undir heitinu Hlemmur-Hlíðarendi þar sem þeir…

Húnakórinn – Efni á plötum

Húnakórinn – Dropinn holar steininn: Tónleikar í Seltjarnarneskirkju 21. mars 2002 Útgefandi: Húnakórinn Útgáfunúmer: [án útgáfunúmers] Ár: 2002 1. Lysthúskvæði 2. Veröld fláa 3. Ölerindi 4. Fuglinn í fjörunni 5. Í dag skein sól 6. Við tvö og blómið 7. Húnabyggð 8. Þegar höldum við norður 9. Smávinir fagrir 10. Við gengum tvö 11. Blíðasti…

Húnakórinn (1993-2018)

Húnakórinn var kór sem starfaði á höfuðborgarsvæðinu og var skipaður fólki sem ýmist voru brottfluttir Húnvetningar eða átti rætur að rekja til Húnavatnssýslna. Kórinn starfaði í um aldarfjórðung en ekki er ljóst hvort hann starfaði innan Húnvetningafélagsins í Reykjavík eða var óháður því félagi. Húnakórinn var settur á laggirnar síðsumars 1993 en var síðan formlega…

Hvanneyrarkvartettinn [2] – Efni á plötum

Hvanneyrarkvartettinn [2] – [?] Útgefandi: Hvanneyrarkvartettinn Útgáfunúmer: [engar upplýsingar um útgáfunúmer] Ár: 2018 [?] [engar upplýsingar um efni] Flytjendur: Jón Hólm Stefánsson – söngur Ólafur Geir Vagnsson – söngur Jóhannes Torfason – söngur Gunnar Sigurðsson – söngur Jón Ólafur Guðmundsson – píanó

Hæfileikakeppni Íslands [tónlistarviðburður] (2012)

Svokölluð Hæfileikakeppni Íslands var haldin fyrri hluta ársins 2012 á vegum sjónvarpsstöðvarinnar Skjáseins, þar kenndi ýmissa grasa og tónlistaratriði voru fyrirferðamikil en það var þó dansatriði sem bar sigur úr býtum. Það voru Skjáreinn, Mbl.is og Saga film sem héldu utan um Hæfileikakeppni Íslands en fyrirkomulag keppninnar var með þeim hætti að fólk gat sent…

Hæfileikakeppni Dagblaðsins og Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar [tónlistarviðburður] (1979-80)

Sumrin 1979 og 1980 var tvívegis haldin hæfileikakeppni þar sem fólki var gefinn kostur á að sýna hæfileika sína á ýmsum sviðum en keppnin var haldin í nafni Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar og Dagblaðsins á Hótel Sögu. Það mun hafa verið Birgir Gunnlaugsson sem fékk hugmyndina að hæfileikakeppninni og var Dagblaðið tilbúið í samstarf við hann…

Hæ Vektor Hektor (2011)

Hljómsveitin Hæ Vektor Hektor eða öllu heldur „Hæ Vektor Hektor!“ var meðal þátttökusveita í Músíktilraunum vorið 2011. Meðlimir sveitarinnar, sem kom af höfuðborgarsvæðinu, voru þau Adolf Smári Unnarsson bassaleikari og söngvari, Arnór Gunnar Gunnarsson hljómborðsleikari, Kristín Ólafsdóttir hljómborðsleikari, Jakob Gunnarsson söngvari og hljómborðsleikari, Auðunn Lúthersson trommuleikari og Björgvin Ragnar Hjálmarsson saxófónleikari. Hæ Vektor Hektor komst…

Hýjaglýjur og hýjalín (1983)

Hljómsveit með það undarlega nafn Hýjaglýjur & hýjalín starfaði haustið 1983 og lék þá á tónleikum sem haldnir voru í Flensborgarskóla í Hafnarfirði ásamt fleiri hljómsveitum – af því má álykta að sveitin hafi verið úr Firðinum og líklega starfað innan veggja skólans. Og hvað nafn sveitarinnar varðar, þá er ekki ólíklegt að einhver ruglingur…

Hyskið [2] (1992)

Glatkistan óskar eftir upplýsingum um hljómsveit sem starfaði árið 1992 undir nafninu Hyskið, hugsanlega í Hafnarfirði en sveitin lék þá ásamt fleiri sveitum á tónleikum í Firðinum. Hér virðist ekki vera um sömu sveit og starfaði í Kópavogi undir sama nafni fáeinum árum áður. Hér er óskað eftir upplýsingum um meðlimi sveitarinnar og hljóðfæraskipan, auk…

Hæfileikakeppni Safarí [tónlistarviðburður] (1984-85)

Hæfileikakeppni kennd við skemmtistaðinn Safarí við Skúlagötu var haldin sumarið 1984 í tvígang á vegum umboðsskrifstofunnar Sóló og þriðja keppnin var svo haldin árið eftir. Margt er óljóst varðandi þessa/r keppni/r. Efnt var til keppni fyrir hæfileikaríkt fólk á tónlistarsviðinu undir merkjum Hæfileikakeppni Safarí sumarið 1984 og var hljómsveit sett saman til að leika undir…

Rasp [2] (2007-08)

Hljómsveitin Rasp var starfrækt á árunum 2007 og 2008 að minnsta kosti en upplýsingar um þessa sveit eru afar takmarkaðar – svo virðist sem sveitin hafi haft einhverja tengingu við Samhjálp. Meðlimir hljómsveitarinnar virðast hafa verið þeir Guðni Már Henningsson slagverksleikari, Halldór Lárusson söngvari og kassagítarleikari, Heiðar Guðnason söngvari, Kristinn P. Birgisson söngvari, Vilhjálmur Svan…

Afmælisbörn 30. júlí 2025

Þrjú afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar þennan daginn: Söngkonan Erna Þórarinsdóttir, sem upphaflega kom frá Akureyri er sextíu og sex ára gömul í dag. Erna gerði garðinn frægan með hljómsveitum og söngflokkum eins og Brunaliðinu, Módel, Snörunum, Hver og Ernu Evu Ernu en hefur einnig verið mikið í bakraddasöng og sungið inn á ótal plötur…