Afmælisbörn 31. janúar 2026

Á þessum degi koma fjölmörg afmælisbörn við sögu Glatkistunnar: Fyrstan skal telja Árna Matthíasson tónlistarskríbent og blaðamann á Morgunblaðinu um þriggja áratuga skeið, hann hefur einnig setið í dómnefnd Músíktilrauna frá 1987 og skrifað bækur um tónlist svo dæmi séu nefnd, nú síðast bók um feril Bubba Morthens. Árni er sextíu og níu ára gamall…

Afmælisbörn 30. janúar 2026

Fjórir tónlistarmenn eru skráðir með afmæli á þessum degi: Ingvi Þór Kormáksson bókasafnsfræðingur og tónlistarmaður er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Hann hefur gefið út fjölmargar sólóplötur og auk þess tekið þátt í Eurovision undankeppnum og öðrum tónlistarkeppnum, jafnvel unnið til verðlauna erlendis í slíkum keppnum. Ingvi Þór lék með fjölmörgum hljómsveitum á…

Afmælisbörn 29. janúar 2026

Sex afmælisbörn í tónlistargeiranum eru skráð hjá Glatkistunni á þessum degi: Trommuleikarinn Ólafur Kolbeins Júlíusson fagnar í dag sextíu og níu ára afmælisdegi sínum en hann var þekktur trommuleikari einkum á áttunda áratugnum þar sem hann lék með mörgum af vinsælustu hljómsveitum landsins s.s. Paradís, Eik, Deildarbungubræðrum og Steinblómi en einnig minna þekktum sveitum eins…

Afmælisbörn 28. janúar 2026

Þrjú afmælisbörn úr tónlistargeiranum eru á skrá Glatkistunnar í dag: Söngkonan Telma Ágústsdóttir er fjörutíu og níu ára gömul á þessum degi. Telma varð landsfræg á einu kvöldi þegar hún söng Eurovision framlag Íslendinga Tell me! ásamt Einari Ágústi Víðissyni árið 2000, hún var þá söngkona hljómsveitarinnar Spur en áður hafði hún sungið með hljómsveitinni…

Afmælisbörn 27. janúar 2026

Í dag eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á lista Glatkistunnar: Elmar Gilbertsson tenórsöngvari er fjörutíu og átta ára gamall á þessum degi. Hann er einn af fremstu söngvurum landsins og nam söng í Hollandi en hann hefur starfað þar og víðar í Evrópu. Elmar er líkast til hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í óperunni Ragnheiði en…

Afmælisbörn 26. janúar 2026

Sjö afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar á þessum degi: Ingibjörg Lárusdóttir söngkona, lögfræðingur, flugfreyja og trompetleikari er fimmtíu og sex ára gömul í dag. Hún leikur reyndar á ýmis önnur hljóðfæri og hefur gefið út jólaplötu ásamt systrum sínum (Þórunni og Dísellu) en þær eru dætur Lárusar Sveinssonar trompetleikara. Siggi Guðfinns eða Sigurður Kristinn Guðfinnsson…

Afmælisbörn 25. janúar 2026

Níu afmælisbörn koma við sögu á þessum merkisdegi: Ingólfur Steinsson tónlistarmaður frá Seyðisfirði er sjötíu og fimm ára gamall í dag, Ingólfur gerði garðinn frægan með Þokkabót á sínum tíma en hefur einnig leikið með hljómsveitum eins og Lubbum, Stemmu, Krás, The Icelandic duo og Bræðrabandinu auk þess að hafa gefið út sólóplötur. Sveinbjörn Grétarsson…

Afmælisbörn 24. janúar 2026

Í dag eru þrjú afmælisbörn skráð hjá Glatkistunni: Reynir Gunnarsson saxófónleikari úr Dúmbó og Steina frá Akranesi er sjötíu og átta ára gamall á þessum degi. Reynir kom auðvitað við sögu á plötum Dúmbós en hefur lítið fengist opinberlega við tónlist allra síðustu árin, saxófónleik hans má þó heyra í söngleiknum Hunangsflugur og villikettir sem…

Afmælisbörn 23. janúar 2026

Þessi dagur er fullur af afmælisbörnum og hefst þá upptalningin: Helena (Marín) Eyjólfsdóttir, ein dáðasta dægurlagasöngkona landsins er áttatíu og fjögurra ára gömul í dag. Helena gerði garðinn einkum frægan norðan heiða með hljómsveitum Finns og Ingimars Eydal og Atlantic kvartettnum en Finnur var eiginmaður hennar. Hún söng jafnframt inn á fjölmargar plötur á söngferli…

Afmælisbörn 22. janúar 2026

Fjölmargt tónlistarfólk kemur við sögu í liðnum Afmælisbörn dagsins í dag: Erla Þorsteins söngkona (stúlkan með lævirkjaröddina) hefði átt afmæli í dag en hún lést 2022, hana þarf vart að kynna enda átti hún hvern stórsmellinn á fætur öðrum á sjötta áratug síðustu aldar sem margir hverjir hafa lifað til dagsins í dag. Söngferill hennar…

Afmælisbörn 21. janúar 2026

Á þessum degi koma sjö afmælisbörn við sögu: Svavar Knútur Kristinsson er fimmtugur í dag og fagnar því stórafmæli. Hann hefur lengst af starfað sem trúbador en einnig sungið og spilað með hljómsveitum eins og Hraun!, Kaffi, Moonboots og Læðunum, nokkrar sólóplötur hafa aukinheldur komið út með honum. Svavar Knútur hefur verið í forsvari fyrir…

Afmælisbörn 20. janúar 2026

Fimm afmælisbörn koma í dag við sögu á skrá Glatkistunnar yfir tónlistarfólk: Ársæll Másson gítarleikari (1955-2024) er fyrstur í röðinni. Ársæll lék með fjölmörgum og ólíkum hljómsveitum um ævi sína og þeirra á meðal má nefna Stórsveit Reykjavíkur, Bambinos, Strandhögg, Kennarabland MS, Úrkula vonar, Misgengið og Föruneyti Gísla Helgasonar. Ársæll gegndi starfi djasstónlistargagnrýnanda á DV…

Afmælisbörn 19. janúar 2026

Í dag eru sex afmælisbörn á lista Glatkistunnar, þau eru eftirfarandi: Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) er sjötíu og sex ára gamall í dag. Hann hefur vægast sagt komið víða við á sínum ferli enda fjölhæfur með afbrigðum, spilar á flest hljóðfæri, útsetur og semur tónlist. Framan af var hann í hljómsveitum eins og Náttúru,…

Afmælisbörn 18. janúar 2026

Sex tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag: Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari af Skaganum er sextíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Hann nam orgelleik á Akranesi og Reykjavík, fór til Danmerkur í framhaldsnám og hefur starfað sem organisti, stjórnandi kóra og skólastjóri tónlistarskóla t.d. í Grundarfirði og Seltjarnarnesi. Hann var ennfremur í…

Afmælisbörn 17. janúar 2026

Glatkistan hefur tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá sinni á þessum degi: Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir (Frida Fridriks) tónlistarkona er fimmtíu og sjö ára gömul í dag. Hún er af tónlistarfólki komin og var ung farin að syngja í Barnakór Tónlistarskóla Rangæinga en hún söng einsöng með kórnum á plötu aðeins þrettán ára gömul. Hjálmfríður söng með…

Afmælisbörn 16. janúar 2026

Í dag eru fimm afmælisbörn úr hópi íslensks tónlistarfólks skráð hjá Glatkistunni: Arnar Sigurbjörnsson gítarleikari er sjötíu og sjö ára gamall í dag, hann var einkum áberandi í poppsenunni á áttunda áratug síðustu aldar. Arnar lék með hljómsveitum eins og Brimkló, Mexíkó, Strengjum, Ævintýri, Toxic, Action og Flowers, og söng stundum líka með sveitum sínum.…

Afmælisbörn 15. janúar 2026

Þrjú afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar á þessum degi: Erlingur Vigfússon óperusöngvari frá Hellissandi hefði átt afmæli í dag en hann fæddist á þessum degi árið 1936. Eftir söngnám í Reykjavík fór Erlingur til framhaldsnáms á Ítalíu og síðar Þýskalands þar sem hann starfaði síðan við Kölnaróperuna frá 1969 til 1998 þegar hann kom heim.…

Youyou sendir frá sér smáskífuna Towns

Eftir sex ára hlé snýr íslenska indí hljómsveitin Youyou aftur með nýtt lag, Towns. Með þeim í þetta sinn er Biggi Nielsen, einn reyndasti trommari landsins og vel þekkt nafn í íslenskri tónlistarsenu. Lagið á sér langa sögu og var bjargað úr lagasafni Youyou af  Bigga Nielsen, sem lengi hefur starfað eftir mottóinu að klára lög áður en ný…

Afmælisbörn 14. janúar 2026

Í dag eru tónlistartengd afmælisbörn Glatkistunnar fimm: Mývetningurinn Stefán Jakobsson er fjörutíu og sex ára gamall í dag. Stjarna hans hefur risið hátt á síðustu árum, bæði sem söngvari hljómsveitarinnar Dimmu en einnig almennt fyrir söngverkefni sín s.s. Föstudagslögin, þá hefur hann sent frá sér sólóplötu. Stefán sem er af miklum tónlistarættum, er og hefur…

Afmælisbörn 13. janúar 2026

Átta afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Óskar Páll Sveinsson hljóð- og upptökumaður er fimmtíu og níu ára í dag. Hann var á yngri árum söngvari og hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Medium en sneri sér síðan að upptökufræðum, starfaði sem tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu og við upptökur og hljóðblöndun á fjölmörgum plötum hér heima áður en…

Afmælisbörn 12. janúar 2026

Þrjú afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag: (Sæmundur) Rúnar Þórisson gítarleikari frá Ísafirði er sjötíu og eins árs í dag en hann hefur komið víða við á löngum tónlistarferli. Rúnar starfaði á árum áður með sveitum eins og Ýr, Danshljómsveit Vestfjarða, Grafík, Haukum, Dínamít og Dögg en henn vann einnig náið með Rafni Jónssyni…

Afmælisbörn 11. janúar 2026

Sex tónlistartengd afmælisbörn eiga daginn í dag: Sigurður Rúnar Samúelsson (Siggi Sam) bassaleikari og fasteignasali frá Ísafirði á fimmtíu og þriggja ára afmæli í dag. Sigurður, sem er af bassaleikaraættum (sonur Samúels Einarssonar í BG & Ingibjörgu) hefur leikið með ýmsum hljómsveitum á ferlinum s.s. Írafári, Hljómsveit Al Deilis, Bravó, Dægurlagakombóinu og Boogie knights svo…

Afmælisbörn 10. janúar 2026

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Sverrir Guðjónsson kontratenór er sjötíu og sex ára gamall í dag. Hann var snemma viðloðandi tónlist á æskustöðvum sínum á Hellissandi, söng sjö ára á söngskemmtun við undirleik föður síns (Guðjóns Matthíassonar) og söng inn á tvær litlar plötur aðeins tólf ára gamall. Hann nam söng hér…

Afmælisbörn 9. janúar 2026

Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Böðvar Guðmundsson rithöfundur sem er þekktastur fyrir Vesturfarasögurnar Hýbýli vindanna og Lífsins tré, er áttatíu og sjö ára gamall í dag. Böðvar var virkur á vinstri arminum hér áður fyrr og kom þá oft fram sem trúbador þar sem hann flutti eigin lög og ljóð. Hann gaf…

Afmælisbörn 8. janúar 2026

Sjö tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu í dag, þau eru: Stórsöngvarinn og strætóbílstjórinn André Bachmann er sjötíu og sjö ára í dag, hann er einna þekktastur fyrir framlag sitt til ýmissa styrktarverkefna í formi tónleika og plötuútgáfu en hefur einnig gefið út sólóplötur og sungið með hljómsveitum eins og Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar (Steina spil), Aríu,…

Afmælisbörn 7. janúar 2026

Enn og aftur er heimurinn fullur af tónlistartengdum afmælisbörnum: Kristján Hreinsson (Hreinsmögur) tónlistarmaður og tón- og textaskáld með meiru er sextíu og níu ára gamall á þessum degi. Fyrir utan að hafa samið mörg hundruð texta sem komið hafa út á plötum hefur Kristján gefið út fjölmargar plötur undir eigin nafni frá 1990. Stefán (Guðmundur)…

Afmælisbörn 6. janúar 2026

Fjögur afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag, þau eru eftirfarandi: Þórunn Lárusdóttir trompetleikari, leik- og söngkona er fimmtíu og þriggja ára gömul í dag en hún hefur komið víða við í tónlistarlegum skilningi. Hún gaf t.a.m. út plötuna Álfar og tröll ásamt Friðrik Karlssyni 2006, jólaplötu með systrum sínum (Dísellu og Ingibjörgu) 2004 og…

Afmælisbörn 5. janúar 2026

Í dag eru sex tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Davíð Þór Jónsson er sextíu og eins árs gamall í dag, hann er fremur þekktur sem skemmtikraftur, fjölmiðlamaður, guðfræðingur og prestur, annar Radíus bræðra og sitthvað fleira en að vera tónlistarmaður. Hann var þó söngvari hljómsveitarinnar Faríseanna sem gaf út plötu 1996, samdi þar bæði lög…

Afmælisbörn 4. janúar 2026

Fimm tónlistarmenn eiga afmæli í dag, þeir eru eftirfarandi: Gunnar Þórðarson gítarleikari og lagahöfundur er áttatíu og eins árs gamall. Gunnar þarf auðvitað alls ekki að kynna, hann fæddist á Hólmavík, fluttist ungur til Keflavíkur, varð fyrst landsfrægur sem gítarleikari, söngvari og aðal lagahöfundur bítlasveitarinnar Hljóma en síðar komu aðrar sveitir eins og Thor‘s hammer,…

Afmælisbörn 3. janúar 2026

Afmælisbörnin eru sex á skrá Glatkistunnar í dag: Sölvi (Haraldsson) Blöndal fyrrum Quarashi-liði er fimmtíu og eins árs gamall á þessum degi. Sölvi hafði verið í ýmsum sveitum áður en hann gerði það gott með Quarashi, s.s. Púff, SSSpan, Júpiters og Stjörnukisa svo dæmi séu tekin en hefur einnig starfrækt dúettinn Halleluwah, auk annarra verkefna.…

Afmælisbörn 2. janúar 2026

Glatkistan hefur þrjú afmælisbörn á skrá sinni þennan annan dag ársins. Trommuleikarinn Pjetur Sævar Hallgrímsson eða Pjetur í Tónspili er sjötíu og þriggja ára gamall í dag. Pjetur sem starfrækti verslunina Tónspil á Norðfirði til margra ára hefur leikið á trommur með ótal hljómsveitum í gegnum tíðina en mest þó fyrir austan. Þeirra á meðal…

Afmælisbörn 1. janúar 2026

Þá er nýtt ár gengið í garð og Glatkistan hefur sex tónlistartengd afmælisbörn á takteinum á þessum fyrsta degi ársins: Felix Bergsson söngvari, leikari og fjölmiðlamaður á fimmtíu og níu ára afmæli á þessum degi. Felix vakti fyrst athygli í uppfærslu Verzlunarskóla Íslands á söngleiknum Rocky horror, varð síðar söngvari Greifanna sem sigraði Músíktilraunir vorið…