Afmælisbörn 1. janúar 2026

Hildur Kristín Stefánsdóttir

Þá er nýtt ár gengið í garð og Glatkistan hefur sex tónlistartengd afmælisbörn á takteinum á þessum fyrsta degi ársins:

Felix Bergsson söngvari, leikari og fjölmiðlamaður á fimmtíu og níu ára afmæli á þessum degi. Felix vakti fyrst athygli í uppfærslu Verzlunarskóla Íslands á söngleiknum Rocky horror, varð síðar söngvari Greifanna sem sigraði Músíktilraunir vorið 1986, vann að barnaefni ásamt Gunnari Helgasyni og hóf enn síðar sólósöngferil eftir að hafa menntað sig í leiklist, hann hefur sent frá sér tvær breiðskífur.

Tónlistarmaðurinn og ljóðskáldið Gísli Þór Ólafsson frá Sauðárkróki (f. 1979) sem einnig gekk undir nafninu Gillon, hefði átt afmæli í dag en hann lést árið 2025. Undir Gillon nafninu sendi Gísli Þór frá sér nokkrar sólóplötur þar sem hann söng og lék á hin ýmsu hljóðfæri en hann starfaði jafnframt með hljómsveitinni Contalgen funeral þar sem hann lék á bassa.

Þá hefði Ólafur Magnússon frá Mosfelli einnig átt afmæli í dag en hann lést 1991. Ólafur sem var kunnur bassasöngvari úr Mosfellsdalnum fæddist 1910, söng með ýmsum karlakórum á höfuðborgarsvæðinu og í Mosfellssveit, og oft sem einsöngvari. Hann hélt þó ekki einsöngstónleika fyrr en hann gaf út fyrstu plötu sína, Ég lít í anda liðna tíð, þá var hann orðinn sjötíu og fimm ára gamall.

Tónlistarkonan Hildur (Kristín Stefánsdóttir) fagnar í dag þrjátíu og sjö ára afmæli sínu. Hildur vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Rökkurró á sínum tíma og hefur einnig starfað í sveitum eins og Red riot, og með fjölmörgu tónlistarfólki hér heima og erlendis. Hún hefur jafnframt sent frá sér breið- og smáskífur á undanförnum árum auk þess að vinna til verðlauna og viðurkenninga í tónlistinni, þá hefur hún verið meðal keppenda í undankeppnum Eurovision.

Gítar- og mandólínleikarinn Ólafur (Baldvin) Sigurðsson er sjötíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Ólafur starfaði á árum áður með fjölda hljómsveita norðan heiða og hér má nefna sveitir eins og Hróka, South River Band, Hjólið og Jamaica svo aðeins fáeinar séu nefndar.

Og að síðustu er hér nefndur verslunar- og tónlistaráhugamaðurinn Gísli Jónsson sem var uppi á árunum 1871 til 1938 en hann er þekktastur á tónlistarsviðinu fyrir að stofna þrjár lúðrasveitir, þær störfuðu á Eyrarbakka, Vík í Mýrdal og Borgarnesi þar sem hann starfaði og bjó.