Afmælisbörn 26. nóvember 2014

hermigervill-wilsonic-2014

Hermigervill

Afmælisbarn dagsins er eitt að þessu sinni:

Sveinbjörn B. Thorarensen (Hermigervill) á stórafmæli en hann er þrítugur. Hermigervill hefur gefið út nokkrar sóló raftónlistarplötur en hann hefur einkum sérhæft sig í vinna úr eldri tónlist, t.d. gömlum íslenskum dægurlögum í nýjum búningi. Hann hefur unnið með ýmsum tónlistarmönnum hér heima s.s. Retro Stefson, Þórunni Antoníu og Berndsen. Hermigervill nam í Hollandi en hefur búið víða um Evrópu.