Rosinn

Rosinn (Lag / texti: Bubbi Morthens / Tolli Morthens) Á netavertíð austanlands ég fékk mitt fyrsta kikk, fullan kassa af genever við fengjum fyrir slikk. Við þrifum strax af tappana, það þoldi enga bið, helltum oní kappana að landans drykkjusið. Æddum strax á dansleikinn þetta herjans lið, brutum allt og brömluðum, gáfum engu grið. Í…

Hrognin eru að koma

Hrognin eru að koma (Lag og texti: Bubbi Morthens) Hrognin eru að koma, gerið kerin klár. Hrognin eru að koma, gerið kerin klár. Setjið dælurnar í samband, takið svo seglin frá. Hrognin eru að koma, gerið kerin klár. Vinnið nógu mikið, peninga munuð þið fá. Vinnið nógu mikið, svo ykkur verki niður í stóru tá.…

Poppstjarnan

Poppstjarnan (Lag / texti: Mike Pollock og Bubbi Morthens / Bubbi Morthens) Í kvöld hann á að fara á stóra sviðið, hann ferðast bara á fyrsta klassa. Á bak við sviðið bíður lítil stúlka með falsaðan passa. Hér kemur hann klæddur í silki, tjásuklipptur með kókaín í hylki, firrtur raunveruleikanum, týndur, stjörnukomplex, píndur. Þeir búa…

Ég vil ekki stelpu eins og þig

Ég vil ekki stelpu eins og þig (Lag / texti: Dan Pollock / Bubbi Morthens) Firrt með andlitsfarða, dauð diskóföt, aumkunarverðir taktar með þrjú göt. Þjáist af föðurkomplex, mamma man þó þú leitir muntu ekki finna hann. Ég vil ekki stelpu eins og þig. Ég vil ekki stelpu eins og þig. Ég vil ekki stelpu…

Blóðið er rautt

Blóðið er rautt (Lag og texti: Bubbi Morthens) Blóðið er rautt, himinninn er blár. Ég þekkti mann sem bjó í húsi í 50 ár. En núna stendur húsið, húsið stendur autt og allt í kringum húsið er orðið dautt. Frambjóðandinn með ístruna sína í ræðupúltinu segir hátt: „Mér þykir það leitt að húsið skyldi hann…

Viska Einsteins

Viska Einsteins (Lag og texti: Bubbi Morthens) Vaknaði upp í morgun, váfrétt barst til mín. Írak, Íran, óskabrunnurinn. Írak, Íran, sundur er slagæðin. Svart blóð rennur ei til vestur. Eru það endalokin? Viska Einsteins, guð minn góður, er okkar kvöl og böl. Minnist Hírósíma, minnist þess skjálfandi og föl. Því kannski núna í nótt eða…

Samband í Berlín

Samband í Berlín (Lag / texti: Mike Pollock / Bubbi Morthens) Nú þyrla vindar haustsins hinstu blöðum, borgin gerist þung og sljó. Skakkur hangi ég á hinum og þessum stöðum, bráðum kemur slydda og snjór. Myrkrið hug minn umlykur, að blekkja sjálfan mig, það er mín fró. Horfa á vini sína bryðja sýrur eins og…

Barnið sefur

Barnið sefur (Lag / texti: Bubbi Morthens / Tolli Morthens) Barnið sefur – barnið hlær, rífur bækur – barnið slær. Stoltur er faðirinn. Vetnissprengja ýlfrar, hlær, tætir af þér haus og tær, stoltur er aðmírállinn. Vörur hækka meir og meir, kaupið lækkar – krónan úr leir. Núna grætur neytandinn, stoltur er kaupmaðurinn. Ungur piltur í…

Laus og liðugur (Sigurður er sjómaður)

Laus og liðugur (Sigurður er sjómaður) (Lag / texti: Jónatan Ólafsson / Númi Þorbergs og Bubbi Morthens) Sigurður er sjómaður, sannur Vesturbæingur. Alltaf er hann upplagður, út að skemmta sér. Dansar hann við dömurnar, dásamaður alls staðar. Með ungar jafnt sem aldraðar út á gólfið fer. Dansar hann á tá og hæl, Vínarpolka, vals og…

Tangó

Tangó (Lag og texti: Bubbi Morthens) Hún var alin upp til þess að giftast, liggja á bakinu og fjölga sér. Hún var alin upp sem Aristókrat dama, upp á punt til þess að þóknast þér. Þau búa í 3ja hæða villu, dreymir um myndir eftir Van Gogh. Eru með sænska Au pair sem kallar sig…

Hírósíma

Hírósíma (Lag og texti: Bubbi Morthens) Heill þér faðir alheimsins, seg þú mér, vorum við ekki fædd þér til dýrðar? Eða voru forfeður mínir ekki nógu trúaðir? Ekkert svar, ekkert hljóð bara blóð og eftirköstin frá Hírósíma. Hættan eykst með hverri mínútu, dauðinn fer á stjá. Klofvega situr hann á atómbombu, hún fer ekki framhjá.…

Augun mín

Augun mín (Lag og texti: Bubbi Morthens) Líttu ekki í augun mínl Litlaus villtu þau stúlkum sýn. Þær sögðu þau hrein sem brúðarlín. Sjá svart tóm við þér gín. Kysstu varir mínar varlega. Varastu allt það fallega, sem rignir úr spilltum munni. Það rífur sem þyrnirunni. Lifað hefur áður langar nætur Rússlands. Leið þín stefnir…

Leyndarmál frægðarinnar

Leyndarmál frægðarinnar (Lag og texti: Bubbi Morthens) Klukkan er fjögur að morgni, við höfum elskast alla nóttina. Bílar fara í gang úti á horni, sólin skein á brúna öxlina. Og þú spurðir mig um leyndarmál frægðarinnar, sem er að stórum hluta einsemdin og stundum fallegt bros. Hár þitt eins og gylltur stormur flæddi niður herðar…

Þjóðlag

Þjóðlag (Lag / texti: Bubbi Morthens / Snorri Hjartarson) Veistu að ég bíð þín og vaki hér og bíð þín bak við grænar rúður og ryðbrunnar skrár, bak við brúnar heiðar, bak við dag og ár? Enginn hefur séð mig en allir hafa þráð mig, svarið eið og söðlað hinn sviffráa jó, hrakist vegavilltur um…

Chile

Chile (Lag / texti: Bubbi Morthens, Rúnar Erlingsson og Magnús Stefánsson / Bubbi Morthens) Skuggi dauðans lagðist yfir Chile, fangelsin urðu yfirfull á ný. Rafmagnslost varð að tískufyrirbæri, er Alliende drápu erlend leiguþý. Herforingjahundar nauðga þar konum, rotturnar nærast leggöngum í. Hvar var þá guð og hans eingetni sonur, fóru þeir kannski líka á blóðugt…

Elliheimilisrokk

Elliheimilisrokk (Lag og texti: Bubbi Morthens) Á sunnudögum dætur og synir, frænkur og frændur fara á elliheimilin. Kyssandi og kjassandi, naga þeirra gömlu bein. Leitandi, spyrjandi um víxlana, afsölin, ríkisskuldaverðbréfin hvort það sé ekki ætlað þeim. Í gegnum móðu dauðans skynja þau samt afkvæmin, aldrei áður hafa talað svo hlýlega, syngjandi blíðlega í traustum tón.…

Heróín

Heróín (Lag / texti: Bubbi Morthens / Bubbi Morthens og Tolli Morthens) Lög og regla, vilja negla, andsvar þitt við kerfinu. Bensín á eldinn, úr hauskúpum hella, atómstríð handa fólkinu. En fólkið er falið í fokheldum húsum, gardínur fyrir augunum. Með boðum og bönnum byrgið ei úti. Það kemur með morgundeginum. Þá krakkarnir falla dofin…

Bólivar

Bólivar (Lag  / texti: Bubbi Morthens / Magnús Ásgeirsson) Karlar sjö úr öllum áttum eiga hafnarfrí, fullir inn á fyrstu knæpu, frjálsir menn á ný: Við skulum drengir drekka og slást og dreypa á stelpurnar, við sem yfir Fetlaflóann fleyttum „Bólivar“. Rambaði hann í hvítum mekki, hrikti í nagla og ró, kolin uppi laus í…

Ef þú hugsar eins og ég

Ef þú hugsar eins og ég (Lag og texti: Unnsteinn Manúel Stefánsson, Vigdís Hafliðadóttir og Ragnhildur Veigarsdóttir) Gleðilegt árið, farsæl fetum nýjan veg! Gleðilegt árið ef þú hugsar eins og ég. Ég get ekki tekið mark á þér. Þú veist ekkert hver ég er. En ég sé hvað þú lækar á twitter. Eins og hvað?…

Plágan

Plágan (Lag og texti: Bubbi Morthens) Ég læðist milli veggja, er úti fyrir dagur eða nótt. Dauðir lifandi leggja, plágur og fararsótt. Ég læðist milli veggja, þetta skeði svo fljótt. Ég læðist milli veggja, hárlaus hryllingur með kýlasótt. Dimmrauð sól, gjöreydd borg, tröllvaxnar rottur skríða um torg. Ég öskra mig hásan, ég öskra mig rauðan,…

Blús fyrir Ingu

Blús fyrir Ingu (Lag og texti: Bubbi Morthens) Þreyttur er ég að morgni dags. Þrái margt en engum segi. Reykmettað loft, rokkað til sólarlags, blindaður af nýjum degi. Hversu lengi hef ég beðið, beðið þessa dag, að þú hvíslaðir mér í eyra, orð sem ég hef þráð frá morgni til sólarlags, orð sem mér einum…

Þú hefur valið

Þú hefur valið (Lag / texti: Bubbi Morthens / Bubbi Morthens og Tolli Morthens) Farður í ríkið fílaðu brennsann, fíraðu á konunni með kjaftshöggi. Taktu hana taki, terror á krakkann, út á tröppu ertu rólegur nágranni. Ríkið ber ábyrgð á morðum og basli, í peningaseðlum er réttlætið falið. Og segir við þig, þarna í tætingi…

L’amour

L’amour (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Eins og hvert íslenskt par hófst þetta allt á bar þegar nemi í viðskiptafræði og lögfræðingur hittust þar. Voru það örlögin? Er stóra spurningin Eða rokið, hópþrýstingur, engin röð og ölvunin L’amour l’amour. L’amour l’amour. L’amour l’amour. L’amour l’amour. Allt fór mjög hægt…

Sátt

Sátt (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Sé þig oft á þessu litla landi og þú vilt ekki ennþá ná augnsambandi og fyrst var ég mjög reið, mörgum partýum kveið, fannst þú rjúfa okkar vinaeið. Missti álit á þér allar mætur og trú. Vildi að fólk vissi að svona værir…

Með þér líður mér vel

Með þér líður mér vel (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Ég finn svo mikla ró þegar ég er með þér finnst mér ég meira en nóg. Ég slaka svo vel á Engir stælar – engin tilgerð. Ég get fellt tár og verið með skítugt hár það er ekkert sem…

Við sögðum aldrei neitt

Við sögðum aldrei neitt (Lag / texti: Eyrún Engilbertsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Ég fór að hugsa aðeins um MH um þig og mig þar og hvað ég náði aldrei að tjá. Manstu eftir jólaballið? Þá bauðstu mér far, ég vildi segja eitthvað þá en ég var feimin og ég fraus svo ég…

Hún ógnar mér

Hún ógnar mér (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Hún er svo sæt – með svona heilbrigða húð sem þarf aldrei að meika. Hún er pottþétt heimsk eða með frekar slappan persónuleika. Og hún er svo klár – alltaf langhæst og svo vakandi’ og einbeitt. Það er eitthvað að –…

Hvernig maður viltu vera?

Hvernig maður viltu vera? (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Mig langaði að skrifa bréf fá hugsanirnar út því ég sef svo illa (engin blá ljós) bara ég og penni og blað já og saltlampinn þinn sem á hér samastað þangað til að þú sækir hann og fleira dót þegar…

Ég vildi (óður til viðtengingarháttar)

Ég vildi (óður til viðtengingarháttar) (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Ég vildi’ að þú sæir mig. Ég vildi’ að þú hlægir þegar ég segi eitthvað snjallt en misstir ekki af því – sem gerist alltaf. Ég vildi að þú spyrðir: Jæja, hvað segir þú nú gott? Segðir að eitthvað…

Best að gera aldrei neitt

Best að gera aldrei neitt (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Stundum geri ég eitthvað villt og fólki finnst ég ósmekkleg sem öðrum finnst tryllt og finnst ég rosa skemmtileg. En ég get verið stillt, kurteis og frambærileg. Það er bara verst hvað sumum finnst ég þá leiðinleg. Gæti ég…

FLOTT

FLOTT (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Ég er á leið upp úr dalnum og í mér er kraftur sem ég nota til að fara ekki þangað aftur. Ég reyni að finna hvað lætur mér líða betur. Hitti sálfræðinginn og sjúkraþjálfarann minn og ég veit að þett’er klisja en ég…

Boltinn hjá mér

Boltinn hjá mér (Lag og texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir) Ég hitti’ einn í gær sem mér fannst sætur og spennandi, fann áhuga í fyrsta sinn eftir fyrrverandi. Við þurftum bæði að fá smá næði frá uppskrúfuðum poppara’ út á reykingasvæði. Við spjölluðum lengi en ég man ekki alveg um hvað, svo bauðst mér…

Mér er drull

Mér er drull (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Ég sé það sem hún sér. Rökkvi er líka hér. Hann situr upp við Lydiu sem hlær. Hún stífnar, verður föl, ég sé að þetta’ er henni kvöl. Ég segi: við getum farið annað bara tvær. Hún svarar: Mér er DRULL.…

…en það væri ekki ég

…en það væri ekki ég (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir) Ef ég gengi um með filmuvél og litla svarta bók, hengi á Roasters og á KB*, tæki upprúllaðan smók, læsi fleiri heimsbókmenntir, greindi þær svo klók, dularfullur introvert, gamaldags en woke, eða færi oft á festivöl, þætti gaman niðrí…

Segðu það bara

Segðu það bara (Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir)   Of langt síðan síðast! Þetta þarf að laga. – Æj sá þetta núna. Fæ ég eftir fjóra daga. Margt í gangi. Skólinn má ekki bíða. Ég væri til í eitthvað… en bara aðeins síðar. En hvað með núna? Er minna…

Einni þér ann ég

Einni þér ann ég (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Einni þér ann ég. Ást mína fann ég, fyrst þá er sá ég þig fegurst meyja. Ég hef flækst um fjarlæg lönd, flakkað víða um heim. Stefnt í þotu strönd frá strönd og stikað á tveim. Ég stúlkur leit í löndum þar,…

Ég labbaði í bæinn

Ég labbaði í bæinn (Lag / texti: Jóhann Helgason / Vilhjálmur Vilhjálmsson) Ég labbaði í bæinn, mér létt í skapi var, að líta inn á búllur samkvæmt vana. Mér fannst ég vera þyrstur, fékk mér bjórglas inni á bar og byrjaði að spá í nátthrafnana. Þá settist hjá mér stúlka – hún sagðist vera sautján.…

Árið 2012

Árið 2012 (Lag / texti: erlent lag / Magnús Ingimarsson og Ómar Ragnarsson) Gömlu dagana gefðu mér þá gat ég verið einn með þér, nú tæknin geggjuð orðin er. Gömlu dagana gefðu mér. Mig dreymdi að væri komið árið 2012, þeir tunglið höfðu malbikið og steypt í hólf og gólf. Já veröldin var skrýtin, það…

Þú átt mig ein

Þú átt mig ein (Lag / texti: Magnús Þór Sigmundsson / Vilhjálmur Vilhjálmsson) Þú átt mig ein, sú ást er hrein. Og ég vil að þú vitir það nú, þú verður mér trú um öll mín ár. Ó, mundu mig er mæðir þig. Hve lengi tíminn er að líða, of langt er að bíða uns…

Í grænum mó

Í grænum mó (Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Gestur Guðmundsson) Ég leit þau fyrst einn dag, einn sumardag með drifhvít morgunský, í grænum mó, þau léku fagurt lag og léku það á ný. Í lágri þúfu í þessum græna mó var þeirra litla bú, var þeirra yndi umlukt bjartri ró og einni von og…

Þetta er nóg

Þetta er nóg (Lag / texti: erlent lag / engar upplýsingar um textahöfund) Sjá snjóinn glitra á fjallinu í nótt, ekkert fótspor hér að sjá. Eitt einsemdar konungsríki og ég virðist, drottningin. Vindurinn gnauðar eins og ólgan inni í mér. Gat ei byrgt það inni en ég reyndi samt. Hleyp þeim ei inn lát þau…

Hlustið á mig

Hlustið á mig (Lag / texti: erlent lag / Sigurgeir Jónsson) Hæ, hlustið á mig la la la. Já hlustið, la la la. Mót freistingum kvenfólksins auðvelt ei er að ætla að standa og gæta að sér. Hafa þarf töluvert hugrekki til og hugann í lagi, eða þar um bil. Gættu þín! Freistingarnar fylgja konum.…

Svefnljóð

Svefnljóð (Lag / texti: Magnús Kjartansson / Kristján frá Djúpalæk) Loks er dagsins önn á enda, úti birtan dvín. Byrgðu fyrir blökkum skugga björtu augun þín. Ég skal þerra tár þíns trega, tendra falinn eld, svo við getum saman vinur syrgt og glaðst í kveld. Lífið hefur hendur kaldar, hjartaljúfur minn. Allir bera sorg í…

Einshljóðfærissinfóníuhljómsveitin

Einshljóðfærissinfóníuhljómsveitin (Lag / texti: erlent lag / Vilhjálmur Vilhjálmsson) Fyrir nokkrum árum þegar fékk ég gítarinn, ég fór með hann beint upp á loft og æfði mig um sinn. Í herberginu mínu sat ég og hamraði á hann þar. Fyrir hugskotssjónum rúlluðu allar gullnu plöturnar. Ef haldin voru skemmtikvöld í hendingskasti fór og hélt þar…

Lítill fugl

Lítill fugl (Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Örn Arnarson) Lítill fugl á laufgum teigi losar blund á mosasæng. Heilsar glaður heiðum degi, hristir silfurdögg af væng. Flýgur upp í himinheiðið, hefir geislastraum í fang, siglir morgunsvala leiðið, sest á háan klettadrang. Þykist öðrum þröstum meiri, þenur brjóst og sperrir stél. Vill að allur heimur…

Myndin af þér

Myndin af þér (Lag / texti: erlent lag / Iðunn Steinsdóttir) Ég mynd þína alltaf á mér ber, þá einu sem ég tók af þér, er ung varst þú. Þú virðist feimin hljóð og hýr og hlýjan sem í augum býr, mér yljar nú. Hver dagur lífs míns langur er, en loksins þegar kvölda fer…

Pólstjarnan

Pólstjarnan (Lag / texti: Ágúst Pétursson / Kristján frá Djúpalæk) Ennþá men ég það frá bernsku hve þú brostir hýrt til mín milli bæja, þegar var ég einn í för. Og mér fannst þú augað vera, sem vakti yfir mér, eini vinurinn, sem gaf við spurning svör. En ég hlaut að kveðja æskubyggð og heimþrá…

Við sundin

Við sundin (Lag / texti: Svavar Benediktsson / Kristján frá Djúpalæk) Hvort manstu vinur öll vorin okkar forðum, hjá vík og sundum margt kvöld í draumi leið. Við gengum þögul og heyrðum sæinn syngja við sandinn kvæðið um það, sem okkar beið. Og vafin töfrum í vitund okkar beggja sú veröld sýndist, en yfir skugga…

Þú ert vagga mín haf

Þú ert vagga mín haf (Lag / texti: Freymóður Jóhannsson / Reinhardt Reinhardtsson) Þú ert vagga mín, haf. Hvergi værar ég svaf, hvergi vordaga sælli ég naut. Við þinn bládjúpa barm grét ég burtu minn harm. Ég var barn þitt í gleði og þraut. Hvort sem brosir þín brá, eða brimhvít og há rís þín…

Sumarnótt

Sumarnótt (Lag / texti: höfundur ókunnur / Jón Sigurðsson) Þegar stjarnan á bláum himni bíður, bjartur máninn um himinhvolfið líður, út á sundunum syngur blærinn þíður. Það er sumarnæturró í Reykjavík. Út við Hljómskála eiga stefnumótin ungur drengur og litla blíða snótin. Oft er gaman að gefa undir fótinn, það er gleði sem er engu…