Sönghópurinn Sólarmegin (1990-2002)

Saga Sönghópsins Sólarmegin á Akranesi spannaði yfir áratug og á þeim tíma sem hann starfaði hélt hann fjölda tónleika og gaf út eina plötu. Sönghópurinn Sólarmegin var stofnaður á Akranesi í upphafi árs 1990 af Jensínu Valdimarsdóttur og Ingveldi Valdimarsdóttur (ekki systur) en Ragnheiður Ólafsdóttir varð fyrsti stjórnandi hópsins. Ekki liggur fyrir hverjir skipuðu kórinn…

Octavia (1987-89)

Söngflokkurinn Octavia  (Oktavía) starfaði á Akranesi á seinni hluta níunda áratugar síðustu aldar, að minnsta kosti á árunum 1987 til 89. Meðlimir Octaviu voru Hrönn Eggertsdóttir, Jensína Valdimarsdóttir, Leif Steindal, Sigurjón Skúlason, Bjarki Sveinbjörnsson, Jensína Waage og Sigurður Ólafsson.