Karlakórinn Húnar [2] (1963)

Svo virðist sem karlakór hafi starfað um skamma hríð árið 1963 í Torfalækjarhreppi í Austur-Húnvatnssýslu en þá um vorið söng þessi kór undir stjórn Þorsteins Jónssonar, hugsanlega innan ungmennafélagsins Húna sem þá starfaði í sýslunni. Ekki virðist um sama kór að ræða og starfað hafði nokkrum árum áður á Blönduósi undir sama nafni.

Karlakórinn Húnar [1] (1944-57)

Karlakórinn Húnar starfaði á Blönduósi á árunum 1944 til 57. Guðmann Sigtryggur Hjálmarsson var stjórnandi kórsins fyrstu ellefu árin eða á árunum 1944 ti 55 en eftir það starfaði hann í aðeins tvö ár – ekki liggur fyrir hver stjórnaði honum síðustu árin. Kórinn hafði byrjað sem tvöfaldur kvartett og gekk í fyrstu undir nafninu…