Fjöll gefur út Í rokinu

Hljómsveitin Fjöll sendir nú frá sér sína aðra smáskífu á árinu en hún ber heitið Í rokinu, sem á einmitt ágætlega við í rokinu á suðvesturhorninu í dag. Samhliða útgáfunni gefur sveitin út myndband við lagið sem var tekið í sal gamla Tónabíós sem nú er verið að gera upp og stendur til að opna á nýjan leik fyrir ýmis konar starfsemi á næstunni.

Þrír meðlimir Fjalla, Guðmundur Annas Árnason söngvari, Snorri Gunnarsson gítarleikari og Kristinn Jón Arnarson bassaleikari, hófu samstarf í hljómsveitinni Soma sem náði töluverðum vinsældum seint í níunni. Þeir hafa síðan unnið saman í hinum ýmsu hljómsveitum gegnum tíðina og er Fjöll sú nýjasta. Fjórði meðlimur sveitarinnar er svo Ragnar Þór Ingólfsson, sem spilar á trommur. Hann spilaði með hljómsveitunum Guði gleymdir og Los, einnig í níunni, en hefur nú dregið fram trommusettið á nýjan leik. Í rokinu var tekið upp í Hljóðrita og sá Kristinn Sturluson um upptöku og mix.

Hér má nálgast lagið á Spotify og Apple music.