Afmælisbörn 10. febrúar 2025

Þorkell Símonarson

Tvö afmælisbörn koma við sögu í dag:

Jóhann Bachmann Ólafsson (Hanni Bach) trommuleikari frá Selfossi er fjörutíu og níu ára gamall á þessum degi. Hanni hefur leikið með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina en þekktastar þeirra eru Skítamórall og Írafár. Aðrar sveitir eru til dæmis Loðbítlar, Poppins flýgur og Boogie knights svo fáeinar séu tíndar til.

Þá á Þorkell (Sigurmon) Símonarson eða Keli vert í Langaholti eins og hann er betur þekktur, fimmtíu og sex ára afmæli í dag. Þorkell var í hljómsveitunum Sveitasveitinni Hundslappadrífu og Stormi í aðsigi sem gáfu út nokkrar plötur fyrir nokkrum árum en hann hefur einnig komið lítillega við sögu á öðrum plötum. Þess má og geta að hann samdi textann við Eurovision lagið Tangó sem Heiða Eiríksdóttir söng við nokkrar vinsældir.

Vissir þú að frystihúsið Ísbjörninn sem Bubbi Morthens ætlaði aldrei aftur að vinna í (Ísbjarnarblús) var síðar hljóðver og þar átti Bubbi reyndar aftur eftir að vinna í tónlist.