Afmælisbörn 30. nóvember 2025

Afmælisbörn Glatkistunnar eru sex á þessum degi: Pálína Vagnsdóttir söngkona frá Bolungarvík er sextíu og eins árs í dag, hún er af mikilli tónlistarfjölskyldu frá Bolungarvík, söng m.a. með hljómsveitinni Septu og hefur sungið inn á nokkrar plötur, þar má nefna plötuna Hönd í hönd: uppáhalds lögin hans pabba, sem hún og systkini hennar gáfu…

Afmælisbörn 29. nóvember 2025

Afmælisbörn Glatkistunnar eru sjö að þessu sinni: Skáldkonan Didda eða bara Sigurlaug Jónsdóttir fagnar sextíu og eins árs afmæli á þessum degi. Segja má að hún hafi fyrst vakið athygli fyrir textann við lagið Ó Reykjavík með Vonbrigðum sem var upphafslag kvikmyndarinnar Rokk í Reykjavík en textar hennar hafa birst víðar. Hún gaf á sínum…

Afmælisbörn 28. nóvember 2025

Sex afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu Glatkistunnar að þessum sinni: Páll Jóhannesson einsöngvari og bóndi frá Þverá í Öxnadal er sjötíu og fimm ára gamall í dag, hann nam söng á Ítalíu á sínum tíma og gaf út tvær einsöngsplötur á níunda áratug síðustu aldar þar sem hann naut m.a. aðstoðar Karlakórsins Geysis og…

Afmælisbörn 27. nóvember 2025

Afmælisbörn dagsins í Glatkistunni eru sjö talsins í dag: Björg Þórhallsdóttir sópran söngkona frá Akureyri er sextíu og eins árs gömul í dag. Björg hefur sent frá sér þrjár plötur, þar af eina jólaplötu. Björg var bæjarlistamaður Akureyrar árið 2007. Klara Ósk Elíasdóttir, Klara í Nylon, fagnar stórafmæli en hún er fertug á þessum degi,…

Afmælisbörn 26. nóvember 2025

Afmælisbörn dagsins eru fimm að þessu sinni: Sveinbjörn B. Thorarensen (Hermigervill) er fjörutíu og eins árs gamall á þessum degi. Hermigervill hefur gefið út nokkrar sóló raftónlistarplötur en hann hefur einkum sérhæft sig í vinna úr eldri tónlist, t.d. gömlum íslenskum dægurlögum í nýjum búningi. Hann hefur unnið með ýmsum tónlistarmönnum hér heima s.s. Retro Stefson,…

Afmælisbörn 25. nóvember 2025

Tvö afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar á þessum degi: Gítarleikarinn og flugvirkinn Garðar Karlsson (f. 1942) hefði átt afmæli í dag en hann lék með nokkrum fjölda hljómsveita hér fyrrum, þeirra á meðal má nefna Hljómsveit Svavars Gests, Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Hljómsveit Elfars Berg, Thaliu, City sextett, Diskó sextett, Stuðbandið, Klappað og klárt og Hljómsveit…

Afmælisbörn 24. nóvember 2025

Nokkrir tónlistarmenn koma við sögu afmælisskrár Glatkistunnar að þessu sinni: Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari Todmobile fagnar sextíu og eins árs afmæli í dag. Hann er líkast til þekktastur fyrir veru sína í Todmobile sem naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma en hann starfrækti einnig dúettinn Bong. Áður hafði hann verið í sveitum eins og…

Afmælisbörn 23. nóvember 2025

Afmælisbörnin í dag eru átta talsins á skrá Glatkistunnar: Erlingur Björnsson (Kristján Erlingur Rafn Björnsson) gítarleikari Hljóma er áttatíu og eins árs á þessum degi. Erlingur varð ungur ein táknmynda bítilæðisins á Íslandi þótt hann væri ekki þeirra mest áberandi. Hann var gítarleikari Hljóma og Thor‘s hammer en hafði áður spilað með Skuggum og Hljómsveit…

Afmælisbörn 22. nóvember 2025

Afmælisbörn dagsins eru fimm að þessu sinni: Hörður Áskelsson kórstjórnandi og organisti er sjötíu og tveggja ára í dag. Hörður var stofnandi Mótettukórs Hallgrímskirkju og Schola Cantorum sem hafa gefið út fjölda platna, hann var ennfremur organisti Hallgrímskirkju í áratugi og hefur leikið á og gefið út plötur einn og í samstarfi við aðra, auk…

Anya Shaddock með nýja smáskífu

Anya Shaddock sendir í dag frá sér nýja smáskífu sem ber heitið „Útlagi“. Lagið er hrá og tilfinningaþrungin frásögn af sambandsslitum, vinamissi og þeirri reynslu að verða viljandi gerð að sökudólgi í sögu sem er ekki sögð af réttlæti heldur ótta. „Útlagi“ fangar þá óbærilegu tilfinningu þegar einhver sem stóð manni nær byrjar að endurskrifa…

Afmælisbörn 21. nóvember 2025

Átta afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona fagnar stórafmæli en hún er sextug á þessum degi. Björk hefur fengist við tónlist frá barnsaldri, var þá í hljómsveitum eins og Jam ´80, Exodus og Draumsýn en síðar í sveitum eins og Tappa tíkarrassi, Kukli og Sykurmolunum. Útgáfuferill Bjarkar er einstakur en…

Afmælisbörn 20. nóvember 2025

Í dag eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar. Tónlistarmaðurinn og tónskáldið Helgi Hrafn Jónsson er fjörutíu og sex ára gamall. Helgi Hrafn kemur af Seltjarnarnesinu þar sem hann steig sínu fyrstu tónlistarspor með hljómsveitinni Bossanova og Lúðrasveit æskunnar en hefur einnig starfað með Aton og fleiri sveitum. Hann nam básúnuleik í Austurríki en spilar…

Afmælisbörn 19. nóvember 2025

Fjögur tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Hér er fyrst nefndur gítarleikarinn Trausti Thorberg en hann lést árið 2021. Trausti (fæddur 1927) lék með ýmsum danshljómsveitum á árum áður, s.s. Krummakvartettnum, Neistum og hljómsveitum Eyþórs Þorlákssonar, Carls Billich og Þóris Jónssonar, auk KK-sextetts en hann var einn af stofnmeðlimum þeirrar sveitar. Trausti…

RGP 103 Blues Band spilar á RVK Bruggfélag

Hljómsveitin RGP 103 Blues Band spilar á RVK Bruggfélag, Tónabíó Skipholti 33, þriðjudaginn 18. nóvember kl. 20:30. Meðlimir sveitarinnr eru þeir Rúnar Þór gítarleikari og söngvari, Pétur Stefánsson (PS & co) gítarleikari og söngvari, Gunnar Örn Sigurðsson gítarleikari og söngvari, Rúnar Vilbergsson trommuleikari og Árni Björnsson bassaleikari. Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög eru vel…

Afmælisbörn 18. nóvember 2025

Í dag eru sjö afmælisbörn í gagnabanka Glatkistunnar: Þorleifur J. Guðjónsson bassaleikari er sextíu og níu ára gamall á þessum degi. Þorleifur hefur starfað í ótal hljómsveitum fyrst sem gítarleikari en síðan á bassa, sumum þekktum en öðrum minna þekktum. Hér eru nefndar nokkrar en þeim fer fjölgandi: KK-band, Egó, Samsara, Strákarnir, Vinir Dóra, Ómar…

Afmælisbörn 17. nóvember 2025

Afmælisbörn dagsins eru sex að þessu sinni: Gauti Þeyr Másson rappari (Emmsjé Gauti / MC Gauti) er þrjátíu og sex ára gamall á þessum degi en hann hefur verið í rappeldlínunni síðan 2002 þegar hann birtist í Rímnaflæði aðeins þrettán ára gamall, hann hefur verið í sveitum eins og 32C og starfað með mörgum öðrum…

Afmælisbörn 16. nóvember 2025

Afmælisbörn dagsins eru fimm á þessum Degi íslenskrar tungu: (Vilborg) Ása Dýradóttir bassaleikari hljómsveitarinnar Mammút er þrjátíu og sjö ára gömul á þessum degi. Eins og margir muna sigraði Mammút Músíktilraunir Tónabæjar og Hins hússins vorið 2004 og hefur síðan gefið út fimm breiðskífur. Næsta afmælisbarn, Jónas Hallgrímsson (1807-45) er eitt af þjóðskáldunum, allir þekkja…

Afmælisbörn 15. nóvember 2025

Tveir tónlistarmenn koma við afmælissögu Glatkistunnar í dag: Richard Scobie sem helst er þekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Rikshaw er sextíu og fimm ára gamall. Scobie söng einnig með hljómsveitum eins og Spooky boogie, Beaverly brothers, The Boy brigade og Loðinni rottu. Hann hefur einnig gefið út sólóplötu og hefur skotið upp kollinum bæði í Landslagskeppninni…

Afmælisbörn 14. nóvember 2025

Fjórir tónlistarmenn prýða afmælisdagaskrá Glatkistunnar að þessu sinni: Jón Geir Jóhannsson trommuleikari á stórafmæli en hann er fimmtugur í dag. Jón Geir hefur spilað með fleiri þekktum hljómsveitum en flestir aðrir hljóðfæraleikarar, meðal sveita sem hann hefur leikið með eru Skálmöld, Kalk, Bris, Ampop, Sýróp, Klamidía X, Hraun, Trassarnir og Urmull. Hip hop tónlistarmaðurinn Ársæll…

Afmælisbörn 13. nóvember 2025

Afmælisbörn dagsins eru sex að þessu sinni: Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran söngkona og kórstjórnandi er sextug og fagnar því stórafmæli í dag. Hún gaf út plötu með óperuaríum fyrir nokkrum árum og síðar einnig djassskotnu plötuna Ó ó Ingibjörg, ásamt bræðrum sínum, hún hefur aukinheldur sungið inn á nokkrar aðrar plötur. Ingibjörg hefur stjórnað Kvennakór Garðabæjar…

Afmælisbörn 12. nóvember 2025

Fjögur tónlistartengd afmælisbörn dagsins eru eftirfarandi: Natalía Chow Hewlett kórstjórnandi frá Hong Kong á sextíu og þriggja ára afmæli á þessum degi, hún hefur stýrt fjölmörgum kórum hér á landi síðustu áratugina eins og Kvennakór Kópavogs, Englakórnum og Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju. Þá á Emilía Björg Óskarsdóttir söngkona (Emilía í Nylon) fjörutíu og eins árs afmæli á…

Afmælisbörn 11. nóvember 2025

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjölmörg á þessum degi eða tíu talsins: Ásgerður Flosadóttir er sjötíu og eins árs gömul í dag. Ásgerður var þekktust fyrir framlag sitt á plötu Samsteypunnar sem út kom 1970 og hafði m.a. að geyma lagið Friður á jörð (Give peace a change). Hún hefur lítið verið viðloðandi tónlist seinni ár. Jóhann…

Iceland Airwaves 2025 – Laugardagur

Þriðji og síðasti myndapakkinn frá Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni er kominn inn á Facebook-síðu Glatkistunnar – að þessu sinni er að finna nokkrar myndir frá laugardagskvöldinu. Venju samkvæmt var úrval tónlistaratriða mikið.

Afmælisbörn 10. nóvember 2025

Fimm tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Gylfi (Viðar) Ægisson söngvari, gítar- og harmonikkuleikari, sprellari, söngleikjahöfundur, útgefandi, laga- og textasmiður  (1946-2025) hefði átt afmæli á þessum degi en hann lést nýverið, hann starfaði lengstum sem sólólistamaður og gaf út fleiri tugi platna sem slíkur en vann einnig með GRM, Áhöfninni á Halastjörnunni…

Aretha Franklin – heiðurstónleikar

Stefanía Svavarsdóttir og Elísabet Ormslev stíga á svið í gervi Arethu Franklin og flytja ódauðleg lög drottningar sálartónlistarinnar í Ölveri þann 20. nóvember nk. klukkan 20. Með sér hafa þær frábæra hljómsveit skipuð úrvals tónlistarfólki sem skapar magnaðan hljóðheim og ógleymanlega stemningu. Aretha Franklin (1942–2018) var ein áhrifamesta og ástsælasta söngkona allra tíma. Hún hóf…

Afmælisbörn 9. nóvember 2025

Tvö afmælisbörn koma við tónlistarsögu Glatkistunnar á þessum degi: Leó (Reynir) Ólason hljómborðsleikari frá Siglufirði er sjötugur og fagnar því stórafmæli á þessum degi, hann hefur komið víða við á hljómsveitaferli sínum og hefur leikið með sveitum eins og Frum, Hendrix, Vönum mönnum og Miðaldamönnum auk fleiri. Leó hefur jafnframt gefið út efni í eigin…

Afmælisbörn 8. nóvember 2025

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Torfi Ólafsson tónlistarmaður á stórafmæli en hann er sjötugur í dag, fáir hafa líklega leikið á bassa og gítar með jafnmörgum pöbbasveitum og hann, þeirra á meðal má nefna sveitir eins Droplaugu, Rósina, Glæsi, Marz, Systur Söru, Venus, Borgarsveitina, Dansbandið, ET-bandið og Melódíku. Torfi er einnig…

Iceland Airwaves 2025 – Fimmtudagur

Eins og undanfarin ár birtir Glatkistan myndasyrpur frá Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni og má sjá myndir frá fimmtudagskvöldinu á Facebook-síðu vefsíðunnar. Fleiri slíkar syrpur munu birtast næstu dagana.

Afmælisbörn 7. nóvember 2025

Afmælisbörn dagsins eru fimm talsins á skrá Glatkistunnar: Óttarr Ólafur Proppé fyrrverandi alþingismaður og söngvari Ham, Funkstrasse, Rass, Dr. Spock, Drullu o.fl. er fimmtíu og sjö ára gamall á þessum degi. Margir þekkja hann einnig sem prófessorinn á Diskóeyjunni og enn fleiri muna eftir honum í bakraddahlutverki í Eurovision keppninni með Pollapönkurunum. Alexandra Baldursdóttir gítarleikari…

Afmælisbörn 6. nóvember 2025

Í dag eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Jónas Sen fagnar sextíu og þriggja ára afmæli í dag. Jónas er píanóleikari, tónskáld og tónlistargagnrýnandi og hefur fengist við tónlist af ýmsu tagi, hann gaf t.d. út plötu með píanóverkum fyrir um tveimur áratugum og hefur einnig gefið út plötu með söngkonunni Ásgerði Júníusdóttur en…

Iceland Airwaves 2025

Það er komið að enn einni Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni, þeirri tuttugustu og sjöttu í röðinni en hátíðin hefur verið árviss viðburður síðan 1999 þegar flugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli var vettvangur hennar. Hátíðin hófst í dag miðvikudag með nokkrum uppákomum – m.a. á Grund en hún hefst formlega á morgun fimmtudag með þéttri dagskrá á stöðum…

Afmælisbörn 5. nóvember 2025

Sjö afmælisbörn í tónlistargeiranum eru skráð hjá Glatkistunni á þessum degi: Viðar Jónsson tónlistarmaður er sjötíu og átta ára gamall í dag. Viðar hefur mestmegnis verið viðloðandi pöbbabransann í gegnum tíðina, hann hefur leikið og sungið með fjölda sveita til langs tíma auk þess að starfa eins síns liðs. Meðal sveita sem Viðar starfaði með…

Afmælisbörn 4. nóvember 2025

Tvö tónlistartengd afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag: Ljóðskáldið Jóhannes (Bjarni Jónasson) úr Kötlum (1899-1972) átti afmæli á þessum degi. Fjöldi tónlistarfólks hefur í gegnum tíðina fært ljóð Jóhannesar í lagaform og gefið út á plötum, þeirra á meðal má nefna Valgeir Guðjónsson sem reyndar á að baki þrjár plötur byggðar á ljóðum hans,…

Blúskvöld í Cadillac klúbbnum

Boðað er til skemmtilegs blúskvölds þriðjudagskvöldið 4. nóvember kl. 20:00 í Súðarvogi 30, til styrktar Blúsfélagi Reykjavíkur og Cadillac Klúbbnum. Allt tónlistarfólk kvöldsins er á heimavelli en þau æfa reglulega í Cadillac klúbbnum og eru tilbúin að setja stemninguna í gang! Á svið stíga: • Sveinn Hauksson • Cadillac Jazz Band • Kveinstafir • Halló…

Afmælisbörn 3. nóvember 2025

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjögur í dag: Ólafur Þór Arnalds tónlistarmaður er þrjátíu og níu ára gamall á þessum degi. Ólafur hefur að mestu leyti starfað sjálfstætt tónskáld og tónlistarmaður, gefið út fjöldann allan af plötum og hlotið fyrir þær viðurkenningar en hann hefur einnig leikið á trommur með sveitum eins og Mannamúl, Celestine, Fighting shit…

Afmælisbörn 2. nóvember 2025

Í dag eru afmælisbörn á skrá Glatkistunnar níu talsins: Troels Bendtsen á áttatíu og tveggja ára afmæli á þessum degi. Troels var einkum þekktur fyrir framlag sitt í Savanna tríóinu og Þremur á palli en báðar sveitirnar nutu vinsælda á sjöunda áratugnum, síðarnefnda sveitin starfaði einkum í nánu samstarfi við Jónas Árnason og leikhúsið en…

Afmælisbörn 1. nóvember 2025

Afmælisbörn dagsins hjá Glatkistunni að þessu sinni eru sjö talsins: Jón Sigurbjörnsson söngvari, leikari og hestamaður hefði átt afmæli í dag en hann lést 2021. Jón var fæddur á þessum degi 1922, nam leiklist í Bandaríkjunum og samhliða því lærði hann söng. Hann hélt áfram söngnámi á Ítalíu og hér heima en vann þó fyrst…