Afmælisbörn 11. nóvember 2025

Pétur Ben

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjölmörg á þessum degi eða tíu talsins:

Ásgerður Flosadóttir er sjötíu og eins árs gömul í dag. Ásgerður var þekktust fyrir framlag sitt á plötu Samsteypunnar sem út kom 1970 og hafði m.a. að geyma lagið Friður á jörð (Give peace a change). Hún hefur lítið verið viðloðandi tónlist seinni ár.

Jóhann Davíð Richardsson trommuleikari er sextíu og eins árs gamall á þessum degi. Jóhann gekk lengstum undir nafninu Jói Motorhead og lék á trommur í hljómsveitum eins og Egó, Q4U, Seiðbandinu, Flames of hell og Mogo homo.

Samúel Jón Samúelsson básúnuleikari er fimmtíu og eins árs gamall í dag. Samúel hefur komið víða við, rekið eigin sveitir (Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar) og leikið með hljómsveitum eins og Jagúar, Havana og Milljónamæringunum. Hann hefur einnig gefið út sólóplötur og unnið með fjölmörgu tónlistarfólki og hljómsveitum, ýmist á sviði og á plötum sem skipta tugum ef ekki hundruðum.

Pétur Ben tónlistarmaður fagnar fjörutíu og níu ára afmæli sínu á þessum degi, hann hefur gefið út sólóplötur auk þess að vinna með listamönnum eins og Eberg, Elínu Ey, Mugison, Lay Low og Ólöfu Arnalds. Pétur hefur ennfremur leikið með hljómsveitum eins og Tristian og Inflammatory.

Höskuldur Ólafsson hagfræðingur og fyrrum Quarashi meðlimur er fjörutíu og átta ára gamall á þessum degi, hann var einnig hér áður fyrr í hljómsveitum eins og Wool, Ske og 2001 svo nokkur dæmi séu nefnd.

Greta Salóme Stefánsdóttir söngkona, fiðluleikari og tónskáld er þrjátíu og níu ára í dag. Eins og alþjóð veit hefur hún tvívegis farið sem fulltrúi Íslands í Eurovision keppnina, með lögin Never forget (2012) og Hear them calling (2016) og hún á einnig að baki eina sólóplötu, In the silence sem kom út 2012. Greta Salóme hefur aukinheldur  leikið inn á fjölmargar plötur annarra listamanna.

Trommuleikarinn Ragnar Sigurjónsson (oft nefndur Gösli hér áður) er sjötíu og sjö ára gamall í dag. Ragnar lék með miklum fjölda hljómsveita hér áður og meðal þeirra má nefna misþekktar sveitir eins og Dúmbó og Steina, Brimkló, Mána, Spottana, Stuðmenn, Randver, Sviðna jörð, Dansbandið og Mexíkó. Hann hefur auk þess leikið inn á ógrynni platna sem session maður.

Samúel Jón Samúelsson

Þá á Edda Þórarinsdóttir leik- og söngkona stórafmæli en hún er áttræð í dag. Edda hefur sungið víða á leiksviðinu og inn á fjölda platna í því samhengi en hennar langstærsta hlutverk á söngsviðinu er auðvitað með Þremur á palli sem naut fádæma vinsælda á meðan það starfaði en þau voru að allan áttunda áratug liðinnar aldar. Hún hefur reyndar lítillega einnig starfað með tríóinu Tveimur á palli með einum kalli sem er eins konar útfærsla af fyrrnefnda tríóinu.

Gunnar Ringsted gítarleikari og tónlistarkennari á sjötíu og þriggja ára afmæli í dag. Hann hefur starfað með ógrynni sveita á Akureyri, í Borgarfirðinum og víðar og við lauslega athugun fundust á þriðja tug sveita sem hann hefur leikið með, þeirra á meðal má nefna Seðla, Key to the highway, Nafið, Óvissu, Flakkara, Gammel dansk, Roof tops, Bítilbræður, Hunang, Miðhraunstríóið, Spacemen og Blindhæð.

Gerður Jóna Benediktsdóttir söngkona (fædd 1945) hefði einnig átt afmæli á þessum degi en hún lést árið 2021. Það má með sanni kalla hana barnastjörnu en hún átti að baki stórsmellinn Æ, ó, aumingja ég, sem hún söng fjórtán ára gömul árið 1959 inn á tveggja laga plötu. Það lag fylgdi henni síðan og heyrist enn reglulega spila á útvarpsstöðvum og víðar.