Heiðdís Norðfjörð (1940-2021)

Heiðdís Norðfjörð

Nafn Heiðdísar Norðfjörð er töluvert þekkt þegar kemur að efni fyrir börn en hún annaðist dagskrárgerð í útvarpi fyrir þann aldurshóp um árabil, var barnabókahöfundur sem las eigin sögur og annarra inn á vinsælar kassettur sem gefnar voru út af Hörpuútgáfunni á Akranesi, en þekktust er hún þó líklega fyrir að semja tónlistina á plötunum um Pílu pínu og Dolla dropa.

Heiðdís Norðfjörð (f. 1940) bjó og starfaði norður á Akureyri alla tíð, hún lærði eitthvað á píanó sem barn en mun hafa leikið meira eftir eyranu og átti jafnframt auðvelt með að semja tónlist eins og síðar átti eftir að koma í ljós, hún hafði ennfremur ágæta söngrödd og söng í Kirkjukór Akureyrarkirkju lengi vel. Heiðdís var sjúkraliði að mennt, starfaði lengi sem læknaritari og veitti dvalarheimilinu Skjaldarvík forstöðu um árabil, samhliða þeim störfum annaðist hún barnatíma Ríkisútvarpsins um margra ára skeið en þeir voru þá sendir út frá Akureyri (RÚVAK), þar annaðist hún upplestur á eigin sögum (og öðrum) fyrir börn og varð kunn fyrir það, nokkrar sögur eftir hana hafa verið gefnar út á bókum.

Haustið 1979 las Heiðdís í útvarpi söguna um Pílu pínu eftir Kristján frá Djúpalæk en hún hafði þá samið sönglög sem hún sjálf söng við ljóð Kristjáns úr sögunni, sonur hennar Gunnar Gunnarsson (síðar þekktur píanóleikari og organisti) lék undir á píanó. Þetta mæltist það vel fyrir að gerður var um þrjátíu mínútna söngleikur upp úr sögunni sem hljóðritaður var og gefinn út af bókaútgáfunni Erni & Örlygi haustið 1980 en þá kom jafnframt Pílu pínu bókin út eftir Kristján frá Djúpalæk. Nokkur laganna nutu töluverðra vinsælda og meðal þeirra var Kattarslagurinn sem Heiðdís söng sjálf en hún var jafnframt sögumaðurinn á plötunni, Heiðdís samdi öll lög plötunnar nema eitt sem Ragnhildur Gísladóttir samdi en Ragnhildur hélt utan um verkefnið sem útsetjari og upptökustjóri. Pílu pínu platan var svo endurútgefin á geisladisk árið 2007. Heiðdís vann sjálf leikgerð upp úr sögunni/plötunni sem síðar var sett á svið hjá leikfélagi Framhaldsskólans á Húsavík og litlu síðar Leikfélagi Akureyrar (ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands).

Heiðdís Norðfjörð

Árið 1984 kom svo út önnur plata, Dolli dropi: sögur og söngvar þar sem Heiðdís var í hlutverki sögumanns og söngvara en hún samdi tónlistina og að mestu textana við sögurnar sem voru eftir Jónu Axfjörð, nokkrar bækur höfðu komið út um Dolla dropa sem einnig hafði birst í Stundinni okkar í Ríkissjónvarpinu – Stúdíó Bimbó á Akureyri gaf plötuna út.

Fjórar kassettur höfðu komið út á vegum Mifa-útgáfunnar árið 1979 með upplestri Heiðdísar á ævintýrum H.C. Andersen, þær nutu mikilla vinsælda og voru endurútgefnar sem og fjöldi annarra slíkra kassetta sem komu út á næstu árum og áratugum, þær höfðu að geyma gömul ævintýri, þjóðsögur og aðrar sögur sem margar hverjar voru samdar af Heiðdísi sjálfri sem las inn á þær en einnig höfðu sumar þeirra að geyma tónlist þar sem Gunnar sonur hennar lék undir á píanó. Fyrir þetta vann hún m.a. til verðlauna í samkeppni Námsgagnastofnunar um léttlestrarefni fyrir börn, síðar hlaut hún einnig viðurkenningu fyrir starf sitt til menningarmála á Akureyri.

Heiðdís Norðfjörð lést í ársbyrjun 2021, á áttugasta og fyrsta aldursári.

Efni á plötum