Tiktúra (1971)

Afar takmarkaðar heimildir er að finna um hljómsveitina Tiktúru sem starfandi var vorið 1971 en sveitin lék þá á frægri útihátíð sem haldin var við Saltvík á Kjalarnesi. Meðlimir sveitarinnar voru þeir Ari Brimar Gústafsson bassaleikari, Óskar Smári Haraldsson söngvari, Guðmundur Daði Ágústsson gítarleikari, Ari Garðar Georgsson trommuleikari og Brynjar Þór Jakobsson gítarleikari en annað…

Jómfrú Ragnheiður [1] (1972-75)

Hljómsveit undir nafninu Jómfrú Ragnheiður var starfandi á höfuðborgarsvæðinu sumarið 1972 en nafn hennar er skírskotun í leikrit Guðmundar Kamban um Ragnheiði biskupsdóttur. Jómfrú Ragnheiður var stofnuð árið 1972 af Brynjari Þór Jakobssyni gítarleikara og Óskari Smára Haraldssyni söngvara sem höfðu þá starfað með hljómsveitinni Tiktúru, sem m.a. hafði spilað á Saltvíkurhátíðinni 1971. Aðrir meðlimir…