Hljómsveit undir nafninu Jómfrú Ragnheiður var starfandi á höfuðborgarsvæðinu sumarið 1972 en nafn hennar er skírskotun í leikrit Guðmundar Kamban um Ragnheiði biskupsdóttur.
Jómfrú Ragnheiður var stofnuð árið 1972 af Brynjari Þór Jakobssyni gítarleikara og Óskari Smára Haraldssyni söngvara sem höfðu þá starfað með hljómsveitinni Tiktúru, sem m.a. hafði spilað á Saltvíkurhátíðinni 1971. Aðrir meðlimir sveitarinnar voru þeir Jón Ívar Guðjónsson bassaleikari, Guðmundur Guðjónsson gítarleikari og Víglundur Rúnar Jónsson trommuleikari.
Hljómsveitin lék ekki mikið opinberlega, hélt sig aðallega í æfingahúsnæðinu en spilaði þó allavega tvívegis á opinberum vettvangi – annars vegar hitaði hún upp fyrir Opus í Þórskaffi haustið 1972 og hins vegar fyrir Fellibylinn Þórarin á balli á Kjalarnesinu tveimur árum síðar.
Jómfrú Ragnheiður starfaði fram á veturinn 1974-75 en meðlimir hennar hafa síðan þá fengist við tónlist með ýmsum hætti.














































