Afmælisbörn 21. febrúar 2026

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Magnús Kjartan Eyjólfsson fagnar fjörutíu og þriggja ára afmæli sínu á þessum degi en hann er líklega þekktastur sem brekkusöngvari og trúbador, Magnús Kjartan hefur einnig verið söngvari og gítarleikari Stuðlabandsins og starfað með hljómsveitum eins og Oxford, Moðhaus, Lokbrá, Kántrýsveitinni Klaufum og fleiri sveitum. Harmonikkuleikarinn…

Didda Jóns (1935-2019)

Þuríður Jónsdóttir (iðulega auglýst undir nafninu Didda Jóns eða Didda Jónsdóttir) var söngkona sem kom fram á sjónarsviðið á sjötta áratug síðustu aldar, hún þótti ein allra efnilegasta dægurlagasöngkona sem þá starfaði og var aukinheldur meðal þeirra fyrstu hér á landi. Didda fæddist árið 1935 í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu en fluttist ung suður til Reykjavíkur,…