Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar (1971-2019)

Þær finnast varla langlífari hljómsveitirnar en Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar sem hefur reyndar runnið sitt skeið en starfaði í nærri því hálfa öld. Sveitin naut alla tíð mikilla vinsælda norðanlands en átti einnig löng tímabil þar sem landsmenn allir dönsuðu í takt við skagfirsku sveifluna eins og tónlist Geirmundar hefur verið kölluð frá því á níunda…

Félagar (1994-2005)

Akureyska hljómsveitin Félagar tók til starfa haustið 1994 undir því nafni en sveitin hafði áður gengið undir nafninu Dansfélagar. Meðlimir voru þeir Birgir Arason [?], Jón Berg [?], Brynleifur Hallsson gítarleikari [?] og Grímur Sigurðsson bassaleikari en þegar sá síðast taldi kom inn í sveitina tóku þeir upp nýja nafnið. Félagar léku á dansleikjum nyrðra,…

Ottó (1989-91)

Á Blönduósi var um tíma starfandi hljómsveit sem kallaðist Ottó, þessi sveit lék víða um Norðurland vestra á árshátíðum, þorrablótum, áramótadansleikjum, skólaböllum og öðrum tilfallandi sveitaböllum á árunum 1989 til 91. Meðlimir Ottós voru þeir Guðmundur Engilbertsson söngvari og gítarleikari, Guðmundur Karl Ellertsson söngvari, Halldór Rúnar Vilbergsson trommuleikari og Hafsteinn Björnsson söngvari og bassaleikari. Einar…

Vinir vors og blóma [1] (1991-92)

Hljómsveitin Vinir vors og blóma starfaði innan Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki árin 1991 og 92 að minnsta kosti. Vinir vors og blóma léku nokkuð á almennum dansleikjum norðan heiða og mun einnig hafa annast undirspil í söngvakeppnum nyrðra. Meðlimir sveitarinnar voru þeir Arnbjörn Ólafsson hljómborðsleikari, Fjölnir Ásbjörnsson söngvari, Ólafur Þór Jósefsson bassaleikari, Haukur Reynisson…