Tranzlokal (2005-07)
Vestmannaeyska pönkrokksveitin Tranzlokal var stofnuð 2005 upp úr hljómsveitunum Lonesher og Pacific, og var upphaflega skipuð þeim Guðmundi Óskari Sigurmundssyni söngvara og gítarleikara, Daníel Andra Kristinssyni bassaleikara, Pétri [?] gítarleikara og Sæþóri Þórðarsyni trommuleikara. Árið eftir (2006) keppti sveitin í Músíktilraunum og komst í úrslit þeirrar keppni. Þá hafði Arnar Sigurðsson tekið við gítarnum af Pétri.…
