Afmælisbörn 29. janúar 2026

Sex afmælisbörn í tónlistargeiranum eru skráð hjá Glatkistunni á þessum degi: Trommuleikarinn Ólafur Kolbeins Júlíusson fagnar í dag sextíu og níu ára afmælisdegi sínum en hann var þekktur trommuleikari einkum á áttunda áratugnum þar sem hann lék með mörgum af vinsælustu hljómsveitum landsins s.s. Paradís, Eik, Deildarbungubræðrum og Steinblómi en einnig minna þekktum sveitum eins…

Baðönd (1993-94)

Hljómsveitin Baðönd starfaði á Selfossi veturinn 1993 til 94 og lék einkum cover efni með hörðu ívafi. Meðlimir sveitarinnar voru Guðmar Elís Pálsson söngvari, Heimir Tómasson gítarleikari, Pétur Harðarson gítarleikari, Halldór Snær Bjarnason bassaleikari og Jón Ingi Sigurgíslason trymbill. Sveitin var eins konar útibú frá hljómsveitinni Bacchus [3] en Heimir, Pétur og Jón Ingi voru…