Afmælisbörn 27. janúar 2026

Í dag eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á lista Glatkistunnar: Elmar Gilbertsson tenórsöngvari er fjörutíu og átta ára gamall á þessum degi. Hann er einn af fremstu söngvurum landsins og nam söng í Hollandi en hann hefur starfað þar og víðar í Evrópu. Elmar er líkast til hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í óperunni Ragnheiði en…

Hvísl [1] (1985-2007)

Þjóðlagahljómsveit sem bar nafnið Hvísl starfaði á höfuðborgarsvæðinu um árabil, reyndar með hléum en þessi sveit lék töluvert á pöbbum auk þess að leika á tónlistarhátíðum erlendis. Það mun hafa verið Hilmar J. Hauksson sem stofnaði sveitina á fyrri hluta ársins 1985 og fékk til liðs við sig Sigurð Inga Ásgeirsson bassaleikara en sá hafði…

Hilmar J. Hauksson (1950-2007)

Tónlistarmaðurinn Hilmar J. Hauksson kom víða við í tónlist á sínum æviferli en hann lést langt fyrir aldur fram. Hilmar Jón Hauksson var fæddur í Reykjavík snemma árs 1950, hann hóf snemma að iðka tónlist en var líklega að mestu eða öllu leyti sjálfmenntaður í þeim fræðum. Hilmar var í nokkrum hljómsveitum á menntaskólaárum sínum…

Hrím [3] (1981-85)

Þjóðlagahljómsveitin Hrím starfaði um nokkurra ára skeið á níunda áratugnum og sendi frá sér bæði plötu og kassettu, sveitin lék töluvert á erlendum vettvangi. Hrím var stofnuð haustið 1981 og var reyndar fyrst um sinn auglýst sem söngflokkur og starfaði e.t.v. sem slíkur framan af. Hópurinn taldi í upphafi fimm meðlimi en það voru þau…

Hanniböl (1973)

Þjóðlagatríó sem bar nafnið Hanniböl var starfrækt á höfuðborgarsvæðinu í nokkra mánuði árið 1973 en þá um vorið kom það fyrst fram opinberlega í sjónvarpsþætti hjá Lítið eitt. Í kjölfarið kom tríóið eitthvað áfram fram með söngdagskrá um sumarið þar sem það lék að mestu frumsamda texta við eigin lög og annarra, m.a. á Akranesi,…

Babýlon (1997)

Hljómsveitin Babýlon (Babylon) starfaði í nokkra mánuði árið 1997, og lék þá á öldurhúsum Reykjavíkur. Sveitina skipuðu Júlíus Jónasson söngvari, Hilmar J. Hauksson söngvari og hljómborðsleikari og Sævar Árnason gítarleikari. Babýlon kom fyrst fram í upphafi árs 1997 og starfaði eitthvað fram eftir hausti.