Afmælisbörn 21. nóvember 2025

Átta afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona fagnar stórafmæli en hún er sextug á þessum degi. Björk hefur fengist við tónlist frá barnsaldri, var þá í hljómsveitum eins og Jam ´80, Exodus og Draumsýn en síðar í sveitum eins og Tappa tíkarrassi, Kukli og Sykurmolunum. Útgáfuferill Bjarkar er einstakur en…

Hugrakka brauðristin Max (2009-)

Hljómsveit sem bar hið sérstaka nafn Hugrakka brauðristin Max, var sprottin upp af unglingahljómsveit sem hafði starfað á Siglufirði á árunum 1988 til 1992, og hét þá einfaldlega Max. Hljómsveitin Max var endurvakin eftir langt hlé árið 2009 og hlaut þá nafnið Hugrakka brauðristin Max, en ekki er ólíklegt að um sömu sveit sé að…

Max [3] (1988-92)

Unglingasveitin Max starfaði á Siglufirði fyrir og um 1990, en sveit með sama nafni hafði verið starfrækt í bænum tveimur áratugum fyrr. Max var stofnuð í upphafi árs 1988 upp úr hljómsveitinni Ekkó og höfðu meðlimir sveitarinnar í upphafi verið þeir Jón Pálmi Rögnvaldsson trommuleikari, Pálmi Steingrímsson söngvari, Rúnar Sveinsson bassaleikari, Hilmar Elefsen gítarleikari og…