Skoðanabræður (1985)

Tríó þingmanna sjálfstæðisflokksins kom fram (að öllum líkindum á skemmtun innan flokksins) undir nafninu Skoðanabræður árið 1985. Þetta tríó skipuðu þeir Árni Johnsen gítarleikari, Ólafur G. Einarsson munnhörpuleikari og Birgir Ísleifur Gunnarsson píanóleikari, hér er giskað á að Árni hafi sungið. Ekki er víst að Skoðanatríóið hafi skemmt opinberlega nema í þetta eina sinn.

Bláa bandið [5] (1984)

Hljómsveit starfandi um tíma innan sjálfstæðisflokksins og bar heitið Bláa bandið. Sveitin mun hafa komið einhverju sinni fram á samkomum innan flokksins. Meðlimir Bláa bandsins voru þeir Friðjón Þórðarson píanóleikari, Matthías Á. Mathiesen trommu- og harmonikkuleikari, Ólafur G. Einarsson munnhörpuleikari, Árni Johnsen gítarleikari og Valdimar Indriðason söngvari. Sveitin starfaði a.m.k. árið 1984 en ekki liggur…