Rokkhljómsveit Íslands [1] (1990-94)

Rokkhljómsveit Íslands var pöbbasveit sem starfaði á fyrri hluta tíunda áratugar síðust aldar. Sveitin var stofnuð árið 1990 upp úr D.B.D af Þórði Bogasyni söngvara en auk hans voru í Rokkhljómsveit Íslands í upphafi þeir Birgir Bragason bassaleikari, Sigurður Reynisson trommuleikari og Friðrik Karlsson gítarleikari en allir voru þeir reynslumiklir tónlistarmenn í bransanum sem höfðu…