
Rokkhljómsveit Íslands 1990
Rokkhljómsveit Íslands var pöbbasveit sem starfaði á fyrri hluta tíunda áratugar síðust aldar.
Sveitin var stofnuð árið 1990 upp úr D.B.D af Þórði Bogasyni söngvara en auk hans voru í Rokkhljómsveit Íslands í upphafi þeir Birgir Bragason bassaleikari, Sigurður Reynisson trommuleikari og Friðrik Karlsson gítarleikari en allir voru þeir reynslumiklir tónlistarmenn í bransanum sem höfðu leikið með sveitum eins og Foringjunum, Mezzoforte og Drýsli.
Þeir félagar léku mestmegnis á pöbbum höfuðborgarsvæðisins sem hafði fjölgað mikið um það leyti en bjórsala hafði verið gefin frjáls á Íslandi vorið 1989. Rokkhljómsveit Íslands lék þannig mest á Gauki á Stöng en einnig má nefna staði eins og Púlsinn og Tvo vini.
Árið 1991 átti sveitin lag (Ímyndin) á safnplötunni Úr ýmsum áttum en á umslagi hennar var nafn sveitarinnar reyndar misritað sem Rokkhljómsveit Reykjavíkur.
Heilmiklar breytingar urðu á skipan Rokkhljómsveitar Íslands – færeyskur trymbill, Rógvi Á Rógvu leysti Sigurð af hólmi og Jón Guðmundsson gítarleikari og Jósep Sigurðsson hljómborðsleikari bættust í sveitina sem varð sextett um tíma. Friðrik hætti svo líka og Jón Elfar Hafsteinsson gítarleikari kom inn í hana auk þess sem Geir Rafnsson trommuleikari og Björn Þórisson hljómborðsleikari komu síðar inn (1993). Hljómsveitin var þá skipuð þeim Þórði, Birgi, Jóni Elfari, Geir og Birni, og starfaði líklega til 1994 en Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari mun hafa tekið við af Jóni Elfari í lokin.














































