
Ásgeir Ingvarsson á yngri árum
Ásgeir Ingvarsson var kunnur í félagsstarfi Vísnavina og reyndar víða í tónlistarheiminum, sem textaskáld, kórstjórnandi og áhugamaður um þjóðlagatónlist.
Ásgeir Guðjón Ingvarsson fæddist á Hamri í Nauteyrarhreppi innst í Ísafjarðardjúpi árið 1919 og bjó hann fyrir vestan fyrstu áratugi ævi sinnar – lengst af á Ísafirði. Þar hóf hann afskipti af tónlist, var í kórum fyrir vestan og stjórnaði m.a. Sjómannakórnum á Ísafirði og kirkjukórnum á Patreksfirði um tíma. Þá var hann liðtækur gítarleikari og lék reyndar á fleiri hljóðfæri en var ómenntaður í tónlistinni og þar með kórstjórnun. Hann kom oft fram á skemmtunum sem gamanvísnasöngvari og lék þá undir á gítar sjálfur en einnig var hann þá þegar orðinn í forsvari ásamt fleirum fyrir sósíalista og átti m.a. þátt í stofnun æskulýðsfylkingar á Ísafirði.
Þegar Ásgeir fluttist suður til Reykjavíkur undir lok fimmta áratugarins hélt hann áfram starfi sínu fyrir vinstri hreyfinguna og var öflugur liðsmaður hennar alla ævi. Hann starfaði lengst af á höfuðborgarsvæðinu sem mælingarmaður en vann einnig við múrverk um tíma fyrstu árin fyrir sunnan.
Ásgeir hélt áfram að koma fram og flytja tónlist eins síns liðs en einnig varð hann virkur í kórastarfi á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann hóf að syngja með Söngfélagi verkalýðssamtakanna í Reykjavík (SVÍR) sem síðar varð að Alþýðukórnum, og stjórnaði Ásgeir þeim kór jafnframt um tíma. Þá var Ásgeir laghentur og annaðist um skeið hljóðfæraviðgerðir, auk þess sem hann málaði í frístundum.

Ásgeir Ingvarsson
Á áttunda áratugnum varð Ásgeir liðsmaður félagsskaparins Vísnavina og varð þar öflugur félagi, mikill áhugamaður um írska þjóðlagatónlist og var m.a. einn af stofnendum Írsk-íslenska félagsins sem var stofnað til að efla menningartengsl milli þjóðanna en hann fór í nokkur skipti utan til að sækja þjóðlagahátíðir. Ásgeir var snemma árs 1984 gerður að heiðursfélaga í Vísnavinum, ásamt Ása í Bæ.
Samhliða hugsjónastarfi sínu með Vísnavinum stjórnaði Ásgeir sönghópum eins og Kór Rauðsokka og Neikvæða sönghópnum og svo var hann á eldri árum í félagsskapnum og sönghópnum Samtstillingu. Hann þótti lunkinn textasmiður og samdi fjöldann allan af textum en sumir þeirra hafa komið út á plötum. Hér má nefna Ég er að leita þín, Næturljóð, Rósin, Enskur hermaður og síðast en ekki síst Palli Hall, sem Hálft í hvoru gerði nokkuð vinsælt þegar það kom út 1982. Ásgeir samdi einnig nokkuð af lögum en af lögum hans og textum er enn margt óútgefið.
Ásgeir Ingvarsson lést árið 1989, og árið 2019 var hans minnst í tilefni af aldarafmæli hans með dagskrá í Dalbæ á Snæfjallaströnd þar sem fjöldi listamanna kom fram og heiðraði minningu hans. Um það leyti kom einnig út sönglaga- og textasafn hans, tekið saman af Þorvaldi Erni Árnasyni, og má sjá frekari upplýsingar um það á vef Snjáfjallasetursins.














































