Hljómsveitin Ást starfaði í Kópavogi um skeið um miðjan níunda áratug síðustu aldar en upphaf hennar má rekja til dúettsins Stífgrím kombósins sem þeir Steinn Skaptason og Kristinn Jón Guðmundsson höfðu starfrækt á árunum 1980 til 82.
Þeir Steinn og Kristinn Jón stofnuðu Ást þegar gítarleikarinn Brúnó (Gunnar Lárus Hjálmarsson – dr. Gunni) og ásláttarleikarinn Trausti Júlíusson (síðar blaðamaður og tónlistargagnrýnandi) gengu til liðs við þá vorið 1984 en Steinn var bassaleikari og Kristinn Jón söngvari. Nokkru síðar tók Jón Kristinn Snæhólm gítarleikari við af Gunnari. Einnig mun Jón Egill Eyþórsson gítarleikari eitthvað hafa komið við sögu sveitarinnar.
Ást átti lag (sem bar heitið 14.40) á safnplötunni SATT 3 sem kom út þetta sama ár, 1984 en það var einungis 26 sekúndur að lengd, litlu síðar komu svo út fjögur lög með sveitinni (Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar, Dagblaðið, Búkolla og Listamenn) á safnsnældunni Rúllustiginn, sem Erðanúmúsík – útgáfufyrirtæki Gunnars gaf út.
Hljómsveitin Ást starfaði fram á haustið 1985, þegar hún lék á sínum síðustu tónleikum.














































