Tamlyn (1987-88)

Hljómsveitin Tamlyn var starfrækt á Selfossi og Stokkseyri á árunum 1987 og 88. Sveitin kom eitthvað lítið fram opinberlega en spilaði þó í pásum á böllum á Suðurlandi meðan hún starfaði.

Tamlyn var stofnuð líklega um sumarið 1987 og voru meðlimir sveitarinnar þeir Ólafur Ólason hljómborðsleikari, Örn Arnarson söngvari, Hróbjartur Gunnarsson trommuleikari, Guðmundur Helgason gítarleikari og Ævar Gunnarsson bassaleikari. Fljótlega eftir að sveitin var stofnuð tók hún þátt í hljómsveitakeppni í Húsafelli um verslunarmannahelgina en varð þar lítt ágengt, þess má geta að Nýdönsk sigraði þá keppni.

Um haustið fóru þeir félagar svo í Stúdíó Gný og hljóðrituðu þar eitt lag, Ástin – part 1.

Sveitin starfaði eitthvað fram á árið 1988 en hætti þá störfum.

Löngu síðar, árið 2026 voru upptökurnar hreinsaðar og endurunnar með nútíma tækni fyrir utan sönginn en Örn söngvari hafði látist af slysförum vorið 1990.