Gítarveisla Bjössa Thor um helgina

Það er komið að Gítarveislu Bjössa Thor,  í samstarfi við Blúsfélag Reykjavíkur og Hafnarfjarðarbæ. Að þessu sinni er boðið upp á tvö ólík tónleikakvöld í Ægi 220 í Hafnarfirði, 2. og 3. október. Með Birni verða frábærir gítarleikarar og tónlistarmenn, meðal annarra Guðmundur Pétursson, Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Andrés Þór, Krummi Björgvins og Börkur Hrafn. Veislan hefst á Hendrix-kvöldi föstudaginn…

Málefni Glatkistunnar í Síðdegisútvarpi Rásar 2

Málefni Glatkistunnar voru til umræðu í Síðdegisútvarpi Rásar 2 sl. miðvikudag. Þangað mætti umsjónarmaður vefsíðunnar í spjall við þá Kristján Frey Halldórsson og Rúnar Róbertsson um framtíð Glatkistunnar og gagnagrunns síðunnar. Spjallið má heyra hér og byrjar á 1:21:18.

Af Glatkistunni

Hálft ár er liðið síðan fréttir og liðurinn Afmælisbörn dagsins birtust síðast á Glatkistunni og hefur því verið hljótt um vefsíðuna undanfarið, þrátt fyrir það hefur heimsóknum á vefsíðuna ekki fækkað, hana heimsækja að jafnaði um 35 þúsund gestir í hverjum mánuði. Jafnframt er um þetta leyti eitt ár liðið síðan nýju efni var síðast…