Af Glatkistunni

Hálft ár er liðið síðan fréttir og liðurinn Afmælisbörn dagsins birtust síðast á Glatkistunni og hefur því verið hljótt um vefsíðuna undanfarið, þrátt fyrir það hefur heimsóknum á vefsíðuna ekki fækkað, hana heimsækja að jafnaði um 35 þúsund gestir í hverjum mánuði. Jafnframt er um þetta leyti eitt ár liðið síðan nýju efni var síðast bætt við gagnagrunn Glatkistunnar en því var hætt vegna þess hversu erfitt var fá bakhjarla til að styrkja verkefnið. Fáein fjárframlög frá einstaklingum sl. haust hjálpuðu þó við að greiða fyrir hýsingu og lén til eins árs. Í millitíðinni hefur lítið gerst. Tilboði menningarmálaráðuneytis um að Landsbókasafnið tæki yfir vefsíðuna var hafnað en samningar náðust ekki um þóknun fyrir vinnuna að baki verkefninu, auk þess hefði gagnagrunnurinn að líkindum ekki fengið færi á að stækka þar áfram.

Undirritaður hefur samt sem áður ákveðið að gera síðustu tilraun til að halda Glatkistunni gangandi en til þess þarf hjálp. Annars vegar þarf framlög til að greiða fyrir hýsingu og lén næsta árið hið minnsta, hins vegar þarf bakhjarla – styrktaraðila svo unnt verði að halda áfram skrifum og efla gagnagrunninn enn frekar. Á sjöunda þúsund umfjallana um tónlistarflytjendur er nú þegar að finna á vefsíðunni en ennþá er mikið óskráð og þar má t.d. nefna nokkur stór nöfn sem nýlega hafa kvatt þennan heim, Björgvin Halldórsson, Megas, Gústa rót, Jónas Ingimundarson, Önnu Vilhjálms og Jón Ásgeirsson. Saga Bubba Morthens, Bjarkar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Todmobile, Sigur rósar, Páls Óskar, Kolrössu krókríðandi og Kristjáns Jóhannssonar (svo aðeins fáein nöfn séu nefnd) er enn óskrifuð og hvað þá sögur allra þeirra hljómsveita, kóra, lúðrasveita, einstaklinga o.fl. sem fengið hafa minna vægi í sögunni og myndu annars hverfa alveg.

Því er leitað eftir aðilum (fyrirtækjum) sem eru tilbúnir að leggja nafn sitt við verkefnið – að skrá íslenska tónlistarsögu og halda henni á lofti um ókomna framtíð. Nánari upplýsingar má finna hér.

Helgi J.