Gítarveisla Bjössa Thor um helgina

Það er komið að Gítarveislu Bjössa Thor,  í samstarfi við Blúsfélag Reykjavíkur og Hafnarfjarðarbæ.

Að þessu sinni er boðið upp á tvö ólík tónleikakvöld í Ægi 220 í Hafnarfirði, 2. og 3. október. Með Birni verða frábærir gítarleikarar og tónlistarmenn, meðal annarra Guðmundur Pétursson, Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Andrés Þór, Krummi Björgvins og Börkur Hrafn.

Veislan hefst á Hendrix-kvöldi föstudaginn 2. október, þar sem Gummi P, Óskar Logi, Brynhildur og Björn Thoroddsen minnast Jimi Hendrix, eins þekktasta og áhrifamesta gítarleikara sögunnar. Fúsi Óttars á trommur og Bjarni Sveinbjörnsson á bassa skipa taktdeild kvöldsins — og þar verður ekkert slegið af.

Laugardagskvöldið 3. október verður svo afar fjölbreytt en þá verða blús, djass og fönk í hávegum höfð. Andrés Þór, konungur djassgítarins, mætir á svæðið og þá ætla Björn og Krummi Björgvins að minnast föður Krumma, Björgvins Halldórssonar. Hver veit nema þeir kíki líka á prógrammið sem Björn spilaði á sínum tíma með Bo í Rússlandi. Börkur Hrafn Birgisson sýnir svo hvernig á að spila fönk að hætti hljómsveitarinnar Jagúar — og Björn verður sjálfur aldrei langt undan með eitthvað skemmtilegt.

Gítarveisla Bjössa Thor á sér langa sögu og að þessu sinni verður líka litið aðeins um öxl. Samhliða tónleikunum verður ljósmyndasýning Ástu Magg með myndum frá Gítarveislum fyrri ára.

P.s

„Leynigestur mætir á svæðið! Hann kemur fram á öðru hvoru kvöldinu og mun sko svo sannarlega koma á óvart!“

Miðar á https://tix.is/event/22267/bjorn-thoroddsen-gitarveisla