Tamlyn (1987-88)

Hljómsveitin Tamlyn var starfrækt á Selfossi og Stokkseyri á árunum 1987 og 88. Sveitin kom eitthvað lítið fram opinberlega en spilaði þó í pásum á böllum á Suðurlandi meðan hún starfaði. Tamlyn var stofnuð líklega um sumarið 1987 og voru meðlimir sveitarinnar þeir Ólafur Ólason hljómborðsleikari, Örn Arnarson söngvari, Hróbjartur Gunnarsson trommuleikari, Guðmundur Helgason gítarleikari…

Chernobyl (1998-2015)

Hljómsveitin Chernobyl starfaði um nokkurra ára skeið innan mótorhjólasamfélagins og lék þá oftsinnis á samkomum tengdum klúbbamenningu þess hóps. Segja má að tíðar mannabreytingar hafi einkennt sögu Chernobyl. Sveitin var stofnuð í byrjun árs 1998 af frændunum Jóni Ólafi Ingimundarsyni trommuleikara og Jóni Magnúsi Sigurðarsyni bassaleikara en þeir höfðu þá verið saman í hljómsveit áður.…

The Gays (um 2005?)

Fátt liggur fyrir um hljómsveitina The Gays sem ku hafa starfað á Kirkjubæjarklaustri, að öllum líkindum í kringum 2005 sé miðað við aldur meðlima sveitarinnar. Meðlimir The Gays voru þeir Guðmundur Helgason, Leifur [?], Steinn Orri Erlendsson, Sigurður Magnús Árnason og Lárus [?] en ekki liggja fyrir neinar upplýsingar um hljóðfæraskipan sveitarinnar eða starfstíma, því…