
Sveinn G. Ágústsson
Sveinn G. Ágústsson er ekki mjög þekkt nafn innan tónlistarbransans í dag en hann gegndi á sínum tíma stóru og mikilvægu hlutverki á bak við tjöldin í upptöku- og tæknibransanum, á áttunda áratugnum og fram á þann níunda.
Sveinn er fæddur 1948, yngri bróðir Ágústs Ágústssonar (Gústa rót) en er tengdur tónlistinni með öðrum hætti. Hann er menntaður húsasmíðameistari og símsmiður, og er reyndar einnig sjálfmenntaður í rafeindafræðum. Hann starfaði hjá Landsímanum í kringum 1970 þegar hann kynntist Karli J. Sighvatssyni sem um það leyti var Hammond orgelleikari í Flowers, Trúbrot og svo Náttúru.
Þeir félagar hófu að gera tilraunir með hljóminn í orgeli Karls og einnig tók Sveinn að sér að skipta níðþungu orgelinu í tvo parta svo auðveldara væri að flytja það milli staða en hljómsveitir Karls fóru um allt land til spilamennsku. Þetta var rafeindafræðilega séð heilmikið afrek því tengja þurfti hlutana saman með teglum sem í voru um hundrað vírar, flestir í sama lit. Svipað verkefni beið Sveins svo hjá hljómsveitinni Töturum þar sem hann var aðstoðarmaður.
Í kjölfarið barst hróður Sveins víða og hann tók til við að gera við og breyta tæknilega flóknum tækjum s.s. Hammond orgelum, hátalaraboxum og gítarmögnurum, og upp úr því bættust við annars konar verkefni s.s. smíði söngkerfa, stereo magnara og annarra skyldra tækja, og stundum þurfti að hafa hraðar hendur til að bjarga tónleikum eða öðrum tónlistartengdum uppákomum. Þetta átti líka við þegar erlendar hljómsveitir komu til landsins, og græja þurfti tæknileg vandamál með litlum sem engum fyrirvara. Hljómsveitir eins og Trúbrot, Lónlí blú bojs, Brimkló og fleiri nutu krafta Sveins.
Og meðal flókinna verkefna má nefna þegar hljómsveitin Náttúra þurfti að notast við segulbönd með strengja- og blásarasveit samhliða eigin undirspili í söngleiknum Jesús Kristi Súperstjörnu árið 1973 en Sveinn útbjó m.a. sérstaka magnara fyrir heyrnartól fyrir hljómsveitarmeðlimi þar sem spilið af segulböndunum heyrðist í öðrum hátalaranum en takturinn í hinum. Þess konar og margvísleg önnur verkefni stóð Sveinn frammi fyrir og leysti af hendi, og varð fyrir það virtur í bransanum meðal tónlistarmanna og annarra tengda honum. Sveinn annaðist einnig hljóðmennsku auk tæknivinnunnar auk þess sem hann starfrækti diskótek um tíma.
Sveinn er hógvær maður sem hefur lítið tranað sér fram og vegna þess hefur nafn hans e.t.v. verið ekki verið áberandi í tónlistarumræðunni síðustu áratugina, hann hefur búið í Englandi síðan 1990.














































