Hljómsveitin Teigabandið hefur verið starfrækt á Dalvík síðan í upphafi aldarinnar en um er að ræða ballhljómsveit sem starfar með hléum.
Teigabandið var stofnað árið 2003 af nokkrum gangnamönnum í Svarfaðardal, sem eiga það sameiginlegt að vera allir meðlimir í Karlakór Dalvíkur. Þetta voru þeir Guðmundur Kristjánsson söngvari, Friðrik Vilhelmsson harmonikkuleikari, Gunnar Þór Þórisson gítarleikari (Menning, Aktíf o.fl.), Kristinn Jakob Hauksson bassaleikari (Menning, Aktíf o.fl.), Júlíus Baldursson ásláttarleikari og Arne Júlíus Henriksen trommuleikari (Bara-flokkurinn, Jamaica o.fl.). Þegar Arne hætti tók Jóhann Magnússon við af honum og leikur hann á cajon (trommukassa) en í stærri verkefnum hefur Halldór Gunnlaugur Hauksson (Halli Gulli) leikið á trommur í sveitinni, auk Þorvaldar Kristjánssonar gítarleikara, þeir tveir eru þó ekki fastir meðlimir Teigabandsins.
Teigabandið hefur leikið víðs vegar á dansleikjum og alls kyns tónlistartengdum uppákomum á liðnum árum en hefur þó ekki verið alveg samfellt starfandi.














































