Ballhljómsveit var starfandi á Dalvík á árunum 2000 til 2002 undir nafninu Aktíf.
Aktíf var skipuð þeim Friðriki Ómari Hjörleifssyni söngvara og trommuleikara sem þá var að byrja að skapa sér nafn utan heimabyggðarinnar, Gunnari Þóri Þórissyni gítarleikara, Kristni Jakobi Haukssyni bassaleikara og Ernu Hrönn Ólafsdóttur söngkonu. Þegar Erna Hrönn hætti í sveitinni um ári eftir stofnun hennar, kom Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona inn í hennar stað og þannig skipuð starfaði Aktíf síðara árið sem hún starfaði. Með réttu mætti segja að þremenningarnir Friðrik Ómar, Erna Hrönn og Hera Björk hafi fengið söngreynslu sína að nokkru leyti frá þessum tíma en þau áttu síðar öll eftir að vera í fremstu röð söngvara hér á landi.
Aktíf lék víða á dansleikjum norðanlands meðan hún starfaði en sveitin hætti störfum árið 2002.














































