
Qmen 7 árið 1979
Hljómsveitin Qmen 7 (einnig ritað Q-men 7) starfaði í Vestmannaeyjum um árabil og var vinsæl ballhljómsveit í Eyjum, sveitin lék mikið í samkomuhúsum þar s.s. Alþýðuhúsinu, Hallarlundi og víðar en einnig uppi á fastalandinu – töluvert á Suðurnesjunum, m.a. í Garði og einnig í Stapa, Festi og á höfuðborgarsvæðinu s.s. í Glæsibæ.
Qmen 7 var stofnuð árið 1976 að hluta til upp úr hljómsveitinni Eldum sem hafði verið starfandi í nokkur ár á undan en stofnmeðlimir sveitarinnar muni líklega hafa verið þeir Einar Guðnason trommuleikari, Sigurgeir Jónsson bassaleikari og Ólafur M. Aðalsteinsson gítarleikari, sá síðast taldi hefur samið þjóðhátíðarlög svo fátt eitt sé nefnt. Svo virðist sem Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) [hljómborðsleikari?] hafi einnig verið meðlimur sveitarinnar á upphafsárum hennar en hann var þá búsettur í Vestmannaeyjum.
Töluverðar mannabreytingar urðu á Qmen 7 en þeir Sigurgeir og Ólafur voru þó líklega lengst í hljómsveitinni, Sigurgeir Björgvinsson gæti hafa leyst Sigurð Rúnar af hólmi og einnig var Jóhannes Johnsen hljómborðsleikari sveitarinnar um tíma en hann mun hafa hætt um áramótin 1978-79 og eftir það var sveitin tríó. Birgir Guðjónsson (síðar formaður Þjóðhátíðarnefndar Vestmannaeyja) hafði þá tekið við trommunum og var sveitin eftir það skipuð þeim Birgi, Sigurgeiri og Ólafi um nokkra hríð. Heimild hermir jafnframt að Björgvin Sigurjónsson hafi á einhverjum tímapunkti verið trommuleikari sveitarinnar en ekki liggur fyrir hvenær það var.
Qmen 7 var mjög virk hljómsveit á fyrstu árum níunda áratugarins og lék flestar helgar á dansleikjum, og fóru þeir félagar m.a.s. til Fredrikshaven í Danmörku (vinabæjar Vestmannaeyja) og léku þar fyrir þarlenda. Um tíma var sveitin nátengd félagsskap í Vestmannaeyjum sem bar nafnið Kúmenfélagið en þeir félagar léku margoft á dansleikjum sem haldnir voru á vegum þess félags.
Einnig má nefna að sveitin lék á þjóðhátíð Vestmannaeyinga sumarið 1983. Það sama ár kom sveitin að einhverju leyti að tónlistinni í kvikmyndinni Nýtt líf – ekki liggur þó alveg ljóst fyrir með hvaða hætti það var en á plötunni Gallabuxur með Guðmundi Rúnari Lúðvíkssyni, sem hefur að geyma tónlist úr myndinni má heyra líklega þrjú lög með sveitinni þar sem hún leikur undir söng Guðmundar Rúnars, m.a. í laginu Slor og skítur sem naut nokkurra vinsælda um þær mundir. Hugsanlega var Guðmundur Rúnar meðlimur sveitarinnar um það leyti. Á þeirri plötu var Friðsteinn Vigfússon orðinn trymbill sveitarinnar og snemma árs 1984 kom Georg Ólafsson bassaleikari inn í hana í stað Sigurgeirs og þar með var Ólafur líklega orðinn einn eftir upphaflegu meðlimanna. Þegar söngkonan Kristjana Ólafsdóttir bættist í hópinn litlu síðar var nafni sveitarinnar breytt í Lífsmark, og starfaði sú sveit í um tvö ár en Papar voru síðan stofnaðir upp úr þeirri sveit að hluta til.














































