Teigabandið (2003-)

Hljómsveitin Teigabandið hefur verið starfrækt á Dalvík síðan í upphafi aldarinnar en um er að ræða ballhljómsveit sem starfar með hléum. Teigabandið var stofnað árið 2003 af nokkrum gangnamönnum í Svarfaðardal, sem eiga það sameiginlegt að vera allir meðlimir í Karlakór Dalvíkur. Þetta voru þeir Guðmundur Kristjánsson söngvari, Friðrik Vilhelmsson harmonikkuleikari, Gunnar Þór Þórisson gítarleikari…

Aktíf (2000-02)

Ballhljómsveit var starfandi á Dalvík á árunum 2000 til 2002 undir nafninu Aktíf. Aktíf var skipuð þeim Friðriki Ómari Hjörleifssyni söngvara og trommuleikara sem þá var að byrja að skapa sér nafn utan heimabyggðarinnar, Gunnari Þóri Þórissyni gítarleikara, Kristni Jakobi Haukssyni bassaleikara og Ernu Hrönn Ólafsdóttur söngkonu. Þegar Erna Hrönn hætti í sveitinni um ári…

Menning [2] (1990-95)

Ballhljómsveitin Menning starfaði á Dalvík á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar. Menning var stofnuð árið 1990 og lék á dansleikjum í Eyjafirði og víðar meðan hún starfaði. Meðlimir sveitarinnar voru þau Gunnar Þór Þórisson gítarleikari og söngvari, Friðrik Sigurðsson trommuleikari, Kristinn Jakob Hauksson bassaleikari, Vilhelm Hallgrímsson hljómborðsleikari og söngvari, Sigríður Inga Ingimarsdóttir söngkona og…