Ást (1984-85)

Hljómsveitin Ást starfaði í Kópavogi um skeið um miðjan níunda áratug síðustu aldar en upphaf hennar má rekja til dúettsins Stífgrím kombósins sem þeir Steinn Skaptason og Kristinn Jón Guðmundsson höfðu starfrækt á árunum 1980 til 82. Þeir Steinn og Kristinn Jón stofnuðu Ást þegar gítarleikarinn Brúnó (Gunnar Lárus Hjálmarsson – dr. Gunni) og ásláttarleikarinn…

Aliter teatrum (1985)

Aliter teatrum var eins konar nýbylgjuútgáfa af hljómsveitinni Nefrennsli og starfaði um skamma hríð árið 1985. Meðlimir sveitarinnar voru Jón Egill Eyþórsson gítarleikari, Alfreð Jóhannes Alfreðsson trommuleikari, Jón Harry Óskarsson bassaleikari og Jón Gunnar Kristinsson (Jón Gnarr) söngvari.