S.O.S. [3] (1980-88)

Hljómsveit sem gekk undir nafninu SOS eða S.O.S. starfaði á höfuðborgarsvæðinu megnið af níunda áratug síðustu aldar, og gerði einkum út á árshátíðarspilamennsku og þess konar samkomur. Sveitin starfaði á árunum 1980 til 1988 og var um tríó að ræða. Það voru þeir Guðmundur Ingólfsson píanóleikari, Halldór Kristinsson gítarleikari og söngvari og Hallvarður Óskarsson trommuleikari…