S.O.S. [3] (1980-88)

S.O.S. leikur fyrir dansi

Hljómsveit sem gekk undir nafninu SOS eða S.O.S. starfaði á höfuðborgarsvæðinu megnið af níunda áratug síðustu aldar, og gerði einkum út á árshátíðarspilamennsku og þess konar samkomur.

Sveitin starfaði á árunum 1980 til 1988 og var um tríó að ræða. Það voru þeir Guðmundur Ingólfsson píanóleikari, Halldór Kristinsson gítarleikari og söngvari og Hallvarður Óskarsson trommuleikari og söngvari sem skipuðu sveitina í upphafi en Árni Ísaksson hljómborðsleikari virðist fljótlega hafa tekið við af Guðmundi og lék með henni eftir það og allt til enda.