Sóló [1] (1961-80 / 2017-)

Hljómsveitin Sóló var ein allra vinsælasta bítlasveitin sem spratt fram á sjónarsviðið fyrir og um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar og telst meðal stærstu nafnanna þegar kemur að uppgjöri við það tímabil, Sóló gaf aldrei út plötu á sínum tíma en hver veit hvað hefði gerst hefðu þeir fengið tækifæri til þess því sveitin hafði…

S.O.S. [3] (1980-88)

Hljómsveit sem gekk undir nafninu SOS eða S.O.S. starfaði á höfuðborgarsvæðinu megnið af níunda áratug síðustu aldar, og gerði einkum út á árshátíðarspilamennsku og þess konar samkomur. Sveitin starfaði á árunum 1980 til 1988 og var um tríó að ræða. Það voru þeir Guðmundur Ingólfsson píanóleikari, Halldór Kristinsson gítarleikari og söngvari og Hallvarður Óskarsson trommuleikari…

Gaukar [2] (1976-79)

Tríó sem gekk undir nafninu Gaukar lék gömlu dansana og blandaða tónlist, og starfaði á höfuðborgarsvæðinu um nokkurra ára skeið á síðari hluta áttunda áratugarins. Sveitin lék mestmegnis í einkasamkvæmum en minna á dansstöðum borgarinnar. Gaukar störfuðu frá upphafi árs 1976 og fram á haustið 1979 en þá virðist hún hafa hætt störfum. Meðlimir sveitarinnar…

Safír-sextett (1961-65)

Safír-sextettinn var eins og nafnið gefur til kynna sex manna hljómsveit sem skartaði að auki tveim söngvurum, og starfaði um árabil á Suðurlandsundirlendinu. Sveitin var skipuð meðlimum úr Árnes- og Rangárvallasýslum en hún mun hafa verið stofnuð 1961 upp úr Tónabræðrum (og hét reyndar Caroll quintet um tíma). Í upphafi voru í henni m.a. Jóhannes…